Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 217

19. október 2010, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 79 liður 3

    Fundargerðir bæjarráðs 215, 216 og 217 teknar til umræðu saman.Fundargerð staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fjárhagsáætlun 2011

    Mál 1009099 Allur ferill málsins

    Félagsmálastjóri sat þennan lið fundarins og fór yfir hagræðingarleiðir og áherslur innan sviðs félagsmála.

  2. 2. Brunavarnaáætlun Slökkviliðs Fjarðabyggðar

    Mál 2008-10-02-1590 Allur ferill málsins

    Umsögn fjármálastjóra um framkvæmdahluta brunavarnaráætlunar lögð fram.  Tekið fyrir á næsta fundi.

  3. 3. Skipulag almannavarna í héraði

    Mál 1009026 Allur ferill málsins

    Minnisblað slökkviliðsstjóra frá 19.október lagt fram.  Bæjarráð sammála um að vinna áfram af krafti að almannavörnum í Fjarðabyggð.

  4. 4. Beiðni um styrkveitingu vegna ársins 2011

    Mál 1010095 Allur ferill málsins

    Bréf Neytendasamtakanna frá 11.október þar sem óskað er eftir styrk.  Bæjarráð hafnar beiðninni.

  5. 5. Viðtöl við þingmenn Norðausturkjördæmis 25.október 2010

    Mál 1010130 Allur ferill málsins

    Framlögð tillaga SSA um dagskrá og fyrirkomulag fundar með þingmönnum Norðausturkjördæmis sem verður haldinn í Neskaupstað 25.október frá kl. 16:30 - 18:00.  Þingmennirnir munu einnig heimsækja Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað.

  6. 6. Lán í erlendum gjaldmiðlum

    Mál 1010137 Allur ferill málsins

    Beiðni fjármálastjóra frá 19.október um að bæjarráð heimili að unnið verði lögfræðiálit um lögmæti lána og samninga sveitarfélagsins í erlendum gjaldmiðlum vegna dóms hæstaréttar um ólögmæti gengistryggingar.  Bæjarráð samþykkir beiðnina.

  7. 7. Tilnefning í starfshópinn "Austfirzk Eining"

    Mál 1010138 Allur ferill málsins

    Í framhaldi af samþykkt frá aðalfundi SSA, sem haldinn var á Breiðdalsvík í september, er óskað eftir að sveitarfélög á starfssvæði SSA endurskipi í starfshóp SSA og sveitarstjórnarráðuneytisins og tilnefni einn fulltrúa.  Jens Garðar Helgason verður fulltrúi Fjarðabyggðar í hópnum.

  8. 8. Nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði

    Mál 0903017 Allur ferill málsins

    Minnisblað mannvirkjastjóra frá 19.október er varðar úrskurð kærunefndar útboðsmála frá 14.október vegna hönnunarsamkeppni um hjúkrunarheimili í Fjarðabyggð.  Úrskurðarnefndin fellir úr gildi ákvörðun kærða, Framkvæmdasýslunnar, um að semja við Einrún ehf. á grundvelli hönnunarsamkeppni um hjúkrunarheimili í Fjarðabyggð sbr. útboð nr. 14838. Bæjarráð samþykkir tillögu mannvirkjastjóra en samkvæmt henni er, eftir samráð við Framkvæmdasýsluna og félagsmálaráðuneytið, lagt til að gengið verði til samninga við Studio-Strik er hlaut 2.sætið í hönnunarsamkeppninni.

  9. 9. Ágóðahlutagreiðsla 2010

    Mál 1010090 Allur ferill málsins

    Bréf Brunabótafélagsins frá 12.október en í því kemur fram að ágóðahlutagreiðsla Fjarðabyggðar á árinu 2010 er 14.604.000.

  10. 10. Málþing um stöðu fámennra byggða 30. október 2010

    Mál 1010092 Allur ferill málsins

    Málþing um stöðu fámennra byggða verður haldið að Ketilási í Fljótum 30.október.  Málþingið er haldið af Sveitarfélaginu Skagafirði í samvinnu við samtökin Landsbyggðin lifi og íbúa í Fljótum.

  11. 11. Fjárhagsáætlun Héraðsskjalasafns Austfirðinga 2011

    Mál 1010129 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar. Samkvæmt áætlun verður framlag Fjarðabyggðar til safnsins óbreytt á milli ára. Vísað til atvinnu- og menningarnefnd.

  12. 12. Fjárhagsáætlun 2011 - Fjárfestingaáætlun

    Mál 1009105 Allur ferill málsins

    Fjárfestingaráætlun ársins 2011 lögð fram til kynningar. Tekið fyrir á næsta fundi.

  13. 13. Fundargerð 777.fundar Sambands íslenskra sveitarfélaga

    Mál 1010105 Allur ferill málsins

    Fundargerð lögð fram til kynningar.

  14. 14. Fundagerð 778.fundar Sambands íslenskra sveitarfélaga

    Mál 1010106 Allur ferill málsins

    Fundargerð lögð fram til kynningar.

  15. 15. Kynning á íslensku safnastarfi

    Mál 1010045 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar.

  16. 16. Útsendingarskilyrði Ríkisútvarpsins

    Mál 1010133 Allur ferill málsins

    Forstöðumanni stjórnsýslu falið að hafa samband við Ríkisútvarpið og óska eftir svörum vegna slæmrar útsendingarskilyrða Rásar 2 í hluta Fjarðabyggðar.

  17. 17. Tilnefning í stjórn Náttúrustofu Austurlands

    Mál 1010145 Allur ferill málsins

    Bæjarráð tilnefndir Valdimar O. Hermannsson sem aðalfulltrúa í stjórn Náttúrustofu Austurlands í stað Líneikar Önnu Sævarsdóttur sem verður sameiginlegur fulltrúi Fjarðabyggðar og Fljótsdalshéraðs í stjórninni.

  18. 18. Hafnarstjórn - 76

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð lögð fram.