Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 218

26. október 2010, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Dagskrá

  1. 1. Beiðni til bæjarráðs vegna Egilsbúðar

    Mál 1002136 Allur ferill málsins

    Þennan lið fundarins sat Jón Hilmar Kárason rekstraraðili Egilsbúðar.  <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />Rætt um rekstur Egilsbúðar í vetur.

  2. 2. Námstyrkir og fjárveitingar - beiðni um aukafjárveitingu.

    Mál 1010134 Allur ferill málsins

    Minnisblað mannauðsstjóra vegna beiðni um framlag til námsstyrkja á fjárhagsáætlun ársins 2010 en ekki var gert ráð fyrir framlagi á áætlun ársins. Frestað til næsta fundar.

  3. 3. Endurskoðun á samþykkt um gatnagerðargjald, byggingarleyfisgjald og stofngjöld holræsa og vatnsveitu í Fjarðabyggð

    Mál 1010109 Allur ferill málsins

    Lögð fram drög að nýrri samþykkt um gatnagerðargjald, byggingarleyfisgjald og stofngjöld holræsa og vatnsveitu í Fjarðabyggð.  Mannvirkjastjóri var í símasambandi við fundinn og fór yfir helstu breytingar á nýrri samþykkt.  Helstu breytingar á samþykktinni er að bætt er við flokkum vegna þjónustugjalda bygginga- og skipulagsfulltrúa ( 7.gr. ) auk vísitöluhækkana. Einnig er greiðslu-fyrirkomulagi gatnagerðagjalda breytt ( 10 gr. )  Bæjarráð vísar samþykktinni til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

  4. 4. Fjárhagsáætlun 2011

    Mál 1009099 Allur ferill málsins

    Fjármálastjóri lagði fram endurskoðaðan tímaramma vegna vinnu við fjárhagsáætlun. Fjármálastjóri fór jafnframt yfir stöðu tekjuáætlunar 2011 og yfirlit málaflokka. Næsti fundur í bæjarráði verður haldinn með sex fulltrúum.

  5. 5. Barnaverndarnefnd nr. 3

    Mál 1010156 Allur ferill málsins

    Fundargerð lögð fram.

  6. 6. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 6

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð lögð fram.