Endurskoðun á samþykkt um gatnagerðargjald, byggingarleyfisgjald og stofngjöld holræsa og vatnsveitu í Fjarðabyggð, síðari umræða.
Mál 1010109 Fyrst á dagskrá 26. október 2010, síðast 25. nóvember 2010. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Byggingar og framkvæmdirUmhverfi og veitur
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2010
Bæjarráð, fundur 218 liður 3
Endurskoðun á samþykkt um gatnagerðargjald, byggingarleyfisgjald og stofngjöld holræsa og vatnsveitu í Fjarðabyggð
Lögð fram drög að nýrri samþykkt um gatnagerðargjald, byggingarleyfisgjald og stofngjöld holræsa og vatnsveitu í Fjarðabyggð. Mannvirkjastjóri var í símasambandi við fundinn og fór yfir helstu breytingar á nýrri samþykkt. Helstu breytingar á samþykktinni er að bætt er við flokkum vegna þjónustugjalda bygginga- og skipulagsfulltrúa ( 7.gr. ) auk vísitöluhækkana. Einnig er greiðslu-fyrirkomulagi gatnagerðagjalda breytt ( 10 gr. ) Bæjarráð vísar samþykktinni til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
-
Bæjarstjórn, fundur 81 liður 15
Bæjarstjóri gerði grein fyrir breytingum sem gerðar voru á samþykktinni milli umræðna. Enginn tók til máls.Staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.