Bæjarráð, fundur 221
16. nóvember 2010, kl. 16:00 til 20:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 81 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umræðu og afgreiðslu saman.Staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Tillögur um skipulagðar samgöngur nemenda í VA og íþróttahópa skólaárið 2009-2010
Mál 0908047 Allur ferill málsins
Þennan lið fundarins sátu mannvirkjastjóri og umhverfisstjóri. Framlagt minnisblað umhverfisstjóra frá 15.nóvember. Bæjarráð samþykkir tillögur umhverfisstjóra og felur honum framkvæmd.
-
2. Sauðfjárveikivarnarlína í Reyðarfirði
Mál 1011086 Allur ferill málsins
Þennan lið fundarins sátu mannvirkjastjóri og umhverfisstjóri. Bréf frá ábúendum jarðarinnar Áreyja frá 10.nóvember er varðar ósk um nýja staðsetningu sauðfjárveikivarnarlínu. Vísað til landbúnaðarnefndar með ósk um umsögn.
-
3. Gjaldskrá Vatnsveitu Fjarðabyggðar, aukavatnsskattur
Mál 1011012 Allur ferill málsins
Tillaga eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar um hækkun á notkunargjaldi hjá Vatnsveitu Fjarðabyggðar. Notkunargjaldið verður eftir breytingu 29 kr/m3. Bæjarráð vísar liðnum til loka fjárhagsáætlunargerðar en allar gjaldskrárbreytingar verða þá afgreiddar. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
-
4. Leiga á lóð á Hjallaleiru
Mál 1011074 Allur ferill málsins
Beiðni Yls ehf. um leigu á lóð undir steypustöð. Framlagt minnisblað mannvirkjastjóra frá 16.nóvember. Bæjarráð getur ekki samþykkt beiðnina og vísar máli til afgreiðslu mannvirkjastjóra skv. tillögu í minnisblaði.
-
5. Nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði
Mál 0903017 Allur ferill málsins
Mannvirkjastjóri sat þennan lið fundarins. Ósk mannvirkjastjóra um staðfestingu á hönnunarsamningi við Studio Strik. Bæjarráð staðfestir samning.
-
6. Áskorun frá velferðavaktinni um aðgæslu í hagræðingarmálum
Mál 1010195 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar.
-
7. Beiðni um stuðning við Snorraverkefnið sumarið 2011
Mál 1011079 Allur ferill málsins
Beiðni verkefnisstjóra Snorraverkefnisins frá 8.nóvember um stuðning Fjarðabyggðar við verkefnið. Vísað til atvinnu- og menningarnefndar.
-
8. Kosning til stjórnlagaþings 27.nóvember 2010
Mál 1010172 Allur ferill málsins
Ákvörðun um kjörstaði og opnunartíma vegna kosninga til stjórnlagaþings 27.nóvember nk. Bæjarráð samþykkir að kjördeildir í Fjarðabyggð verði í grunnskólum Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar, Nesskóla og safnaðarheimilum á Eskifirði og Reyðarfirði. Kjörfundur mun standa frá 09:00 - 22:00 á öllum stöðum. Íbúar í Mjóafirði verða á kjörskrá á Norðfirði en utankjörfundarþjónusta í Mjóafirði verður efld.
-
9. Beiðni um greiðslu leigukostnaðar fyrir Kirkju- og Menningarmiðstöð Fjarðabyggðar
Mál 1011071 Allur ferill málsins
Beiðni forstöðumanns Kirkju- og menningarmiðstöðvarinnar frá 4.nóvember um að Fjarðabyggð greiði leigukostnað menningarmiðstöðvarinnar til Eskifjarðarkirkju. Vísað til frekari skoðunar í tengslum við fjárhagsáætlunarvinnu. Jafnframt vísað til upplýsinga í atvinnu- og menningarnefnd.
-
10. Frestun á hækkun vaxtaálags á lánasamningi
Mál 1011087 Allur ferill málsins
Minnisblað fjármálastjóra frá 11.nóvember um viðauka við lánasamning vegna frestunar á hækkun vaxtaálags. Bæjarráð samþykkir að fresta hækkun vaxtaálags.
-
11. Opnun Skíðamiðstöðvarinnar í Oddsskarði
Mál 1011106 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað fræðslustjóra frá 16.nóvember. Þar sem nægur snjór er kominn í Oddsskarð vill bæjarráð stuðla að því að almenningur geti nýtt skíðasvæðið sem fyrst. Bæjarráð heimilar því opnun þess frá 18.nóvember og veitir 1 milljón til verksins af liðnum óráðstafað 21-69.
-
12. Fjárhagsáætlun 2011
Mál 1009099 Allur ferill málsins
Áframhald vinnu við fjárhagsáætlun 2011. Fjármálastjóri, mannvirkjastjóri og fræðslustjóri sátu þennan lið fundarins að hluta. Jens Garðar vék af fundi kl. 19:30.
-
13. Fræðslu- og frístundanefnd - 5
Fundargerð lögð fram.
-
14. Atvinnu- og menningarnefnd - 6
Fundargerð lögð fram.
-
15. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 7
Fundargerð lögð fram.
-
16. Fundargerðir barnaverndarnefndar 2010
Mál 1011072 Allur ferill málsins
Fundargerð lögð fram.
-
17. Fundargerðir félagsmálanefndar 2010
Mál 1011073 Allur ferill málsins
Fundargerð lögð fram.