Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2010

Kjörskrárstofn vegna kosninga til stjórnlagaþings 27.nóvember 2010

Mál 1010172 Fyrst á dagskrá 16. nóvember 2010, síðast 25. nóvember 2010. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2010

    Bæjarráð, fundur 221 liður 8

    Kosning til stjórnlagaþings 27.nóvember 2010

    Ákvörðun um kjörstaði og opnunartíma vegna kosninga til stjórnlagaþings 27.nóvember nk.   Bæjarráð samþykkir að kjördeildir í Fjarðabyggð verði í grunnskólum Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar, Nesskóla og safnaðarheimilum á Eskifirði og Reyðarfirði. Kjörfundur mun standa frá 09:00 - 22:00 á öllum stöðum. Íbúar í Mjóafirði verða á kjörskrá á Norðfirði en utankjörfundarþjónusta í Mjóafirði verður efld.

  2. Bæjarstjórn, fundur 81 liður 17

    Tillaga flutt af forseta bæjarstjórnar:  <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />Bæjarstjórn samþykkir framlagðan kjörskrárstofn fyrir Fjarðabyggð vegna kosninga til stjórnlagþings 27. nóvember 2010  Á kjörskrá eru alls: 3.165,  1.703 karlar og 1.462 konur. Þá felur bæjarstjórn bæjarráði að afgreiða til fullnaðar eftirtalin verkefni vegna kosninga til stjórnlagaþings sem fram eiga að fara 27. nóvember n.k.:Að úrskurða um breytingar á kjörskrá og ráða til lykta öðrum málum, sem kunna að heyra undir verksvið bæjarstjórnar í sambandi við kosningar.Tillaga samþykkt með 9 atkvæðum.

  3. Bæjarstjórn, fundur 81 liður 2.8

    Fundargerðin „Bæjarráð - 221“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Kosning til stjórnlagaþings 27.nóvember 2010

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is