Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 220

9. nóvember 2010, kl. 16:00 til 22:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 81 liður 1

    Til máls tóku:  Jens Garðar Helgason, Páll Björgvin Guðmundsson, Elvar Jónsson, Jón Björn Hákonarson, Valdimar O Hermannsson, Eiður Ragnarsso.Fundargerðir bæjarráðs teknar til umræðu og afgreiðslu saman.Staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum

Dagskrá

  1. 1. Rafmagnskostnaður Björgunarsveitarinnar Ársólar

    Mál 1010201 Allur ferill málsins

    Bréf Björgunarsveitarinnar Ársólar er varðar rafmagnskostnað í Þórðarbúð, húsnæði sveitarinnar. Einnig lagt fram bréf sama efnis frá síðasta ári og minnisblað rafveitustjóra frá sama tíma.  Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið frekar og frestar afgreiðslu.

  2. 2. Málefni Björgunarsveitanna í Fjarðabyggð

    Mál 0907017 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað forstöðumanns stjórnsýslu vegna greiðslna til björgunarsveitanna á árinu 2009.  Umfjöllun um málefni björgunarsveitanna.  Bæjarráð felur forstöðumanni stjórnsýslu að vinna málið áfram fyrir næsta fund og boða forsvarsmenn sveitanna á næsta fund.

  3. 3. Almenningssamgöngur

    Mál 1004103 Allur ferill málsins

    Umræða um almenningssamgöngur. Bæjarstjóra falið að koma með tillögur fyrir næsta fund.

  4. 4. Afskriftir á álögðu útsvari 2006-2009

    Mál 1011005 Allur ferill málsins

    Minnisblað fjármálastjóra frá 1.nóvember vegna afskrifta á álögðu útsvari.  Vísað til afskriftanefndar.

  5. 5. Sala á fasteigninni Mýrargötu 26 740

    Mál 1011030 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað mannauðsstjóra vegna lokafrágangs á makaskiptum á eignum. Bæjarráð samþykkir skiptin.

  6. 6. Fjárhagsáætlun 2011

    Mál 1009099 Allur ferill málsins

    Áframhald vinnu við fjárhagsáætlun frá síðasta fundi. Þennan lið fundarins sátu fjármálastjóri og mannauðsstjóri auk þess sem fræðslustjóri og formaður fræðslu- og frístundanefndar, slökkviliðsstjóri og mannvirkjastjóri sátu þennan lið fundarins að hluta.  Bæjarráð samþykkir að vísa breytingu á fjárhagsrömmum til fastanefnda. Tillögur verði lagðar fyrir næsta fund bæjarráðs.