Bæjarráð, fundur 222
23. nóvember 2010, kl. 08:30 til 12:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 81 liður 3
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umræðu og afgreiðslu saman.Staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fjárhagsáætlun 2011
Mál 1009099 Allur ferill málsins
Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins auk þess sem fræðslustjóri, mannvirkjastjóri og framkvæmdastjóri hafnanna sátu hluta þessa liðar. Farið yfir einstakar hagræðingarleiðir vegna gerðar fjárhagsáætlunar 2011.
-
2. Endurskoðaður samningur um hlutverk Skólaskrifstofu Austurlands
Mál 1011099 Allur ferill málsins
Fundargerð Skólaskrifstofu Austurlands frá 10.nóvember lögð fram til kynningar. Endurskoðuðum samningi um hlutverk Skólaskrifstofu Austurlands vísað til fræðslu- og frístundanefndar með ósk um umsögn til bæjarráðs sem lögð verði fyrir fund í næstu viku.
-
3. Málefni Þróunarfélagsins haustið 2010
Mál 1009025 Allur ferill málsins
Bréf framkvæmdastjóra Þróunarfélags Austurlands frá 19.október er varðar ráðningu á verkefnastjóra. Bæjarráð samþykkir erindi þróunarfélagsins og felur bæjarstjóra að gera samingi við þróunarfélagið um hvernig framlagi úr frumkvöðlasjóði Fjarðabyggðar verði ráðstafað.
-
4. Árgjöld sveitarfélaga til Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands
Mál 1009205 Allur ferill málsins
Ákvörðun um framlag til Atvinnuþróunarsjóðs á næsta ári. Umræða um málið og bæjarstjóra falið að koma með endanlega tillögu fyrir næsta fund.
-
5. Útsvar 2011
Mál 1011060 Allur ferill málsins
Bæjarráð Fjarðabyggðar samþykkir að vísa til bæjarstjórnar tillögu um að álagningarhlutfall útsvars verði 13,28% af tekjum einstaklinga í Fjarðabyggð. Útsvarheimild sveitarfélagsins yrði þannig fullnýtt. Ljóst er að við núverandi aðstæður í rekstri sveitarfélagsins er óvarlegt annað en að fullnýta útsvarsheimildir þess. Þrátt fyrir að heimildin verði fullnýtt er ljóst að vinna þarf áfram í hagræðingar og sparnaðaraðgerðum í rekstri á næsta ári.
-
6. Vinabæjarsamskipti á norðurlöndum
Mál 0907052 Allur ferill málsins
Minnisblað mannauðsstjóra frá 18.nóvember lagt fram til kynningar. Forseta bæjarstjórnar falið að vinna málið áfram í samráði við mannauðsstjóra.
-
7. Fundagerð 780.fundar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Mál 1011045 Allur ferill málsins
Fundargerð lögð fram til kynningar.
-
8. Bréf til sveitarfélaga sem aðild eiga að Héraðsskjalasafni Austfirðinga
Mál 1011117 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar greinargerð, samkomulag og drög að reglum er varða bókasafn Halldórs Ásgrímssonar og Önnu Guðnýjar Guðmundsdóttur. Lagt fram til kynningar og vísað til atvinnu- og menningarnefndar.
-
9. Fræðslu- og frístundanefnd - 6
Fundargerð lögð fram.
-
10. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 8
Fundargerð lögð fram.
-
11. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 9
Fundargerð lögð fram.