Bæjarráð, fundur 223
29. nóvember 2010, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 82 liður 2
Til máls tóku Jón Björn Hákonarson, Elvar Jónsson, Páll Björgvin Guðmundsson og Guðmundur Þorgrímsson. Bókun Fjarðalistans varðandi 4.lið fundargerðar bæjarráðs nr. 223."Bæjarfulltrúar Fjarðalistans styðja ákvörðun bæjarráðs þess efnis að veita ekki þann styrk til Ungmenna og íþróttasambands Austurlands (ÚÍA) sem beðið er um í 4.lið í fundargerð 223. fundar bæjarráðs. Við leggjum þó áherslu á mikilvægi íþróttastarfs og horfum þar m.a. til forvarnagildis þess en ekki síður mikilvægi þeirrar starfsemi varðandi ímynd og markaðssetningu Fjarðabyggðar. Þess vegna teljum við mikilvægara að þeir fjármunir sem veittir eru í þennan málaflokk fari óskiptir til starfsemi íþróttafélaga innan Fjarðabyggðar. ÚÍA er ekki með lögheimili í Fjarðabyggð og við viljum sjá starfsemi sambandsins með skýrari hætti hér í Fjarðabyggð áður en við tökum þátt í að veita þann styrk sem beðið er um" Fundargerð bæjarráðs frá 29.nóvember samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Endurskoðaður samningur um hlutverk Skólaskrifstofu Austurlands
Mál 1011099 Allur ferill málsins
Fræðslu- og frístundanefnd hefur samþykkt samning fyrir sitt leyti. Bæjarráð vísar samningi til bæjarstjórnar til afgreiðslu með fyrirvara um mögulegar breytingar. Bæjarstjóra falið að vinna málið áfram.
-
2. Aðalfundur Leikfélags Reyðarfjarðar 2010 - Ályktun
Mál 1011200 Allur ferill málsins
Bréf Leikfélags Reyðarfjarðar frá 21.nóvember er varðar ályktun aðalfundar félagsins um afnot af Félagslundi og ósk um viðræður um mögulega nýtingu hússins. Bæjarstjóra falið að ræða við forsvarsmenn félagsins.
-
3. Árgjöld sveitarfélaga til Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands
Mál 1009205 Allur ferill málsins
Framlögð tillaga bæjarstjóra frá 29.nóvember um að ákvörðun, varðandi framlag til Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands, verði frestað þar til niðurstaða liggi fyrir um endurskipulagningu stoðstofnana. Tillögu vísað til frekari umræðu í bæjarstjórn um fjárhagsáætlun ársins 2011.
-
4. Framlög til starfsemi Ungmenna og íþróttasambands Austurlands 2011
Mál 1011199 Allur ferill málsins
Bréf ÚÍA frá 19.nóvember er varðar framlög sveitarfélaga til sambandsins. Bæjarráð getur ekki að svo stöddu orðið við beiðni um íbúaframlag til ÚÍA.
-
5. Jólasjóður - aðstoð fyrir jólin
Mál 1011032 Allur ferill málsins
Beiðni Rauða Kross Íslands um stuðning vegna aðstoðar við einstaklinga fyrir jólin. Bæjarráð sammála um að senda ekki út jólakort í ár en styrkja Rauða Krossinn þess í stað um 300.000.
-
6. Lok afskriftartíma grunnskóla frá ríki til sveitafélaga
Mál 1011007 Allur ferill málsins
Bæjarráð samþykkir framlagða yfirlýsingu og afsal vegna færslu eignarhluta ríkisins í grunnskólabyggingum til Fjarðabyggðar. Bæjarstjóra falið að ganga frá yfirlýsingu og afsali.
-
7. Íbúsamtök Eskifjarðar - Fyrirspurnir til bæjarráðs í nóvember 2010
Mál 1011115 Allur ferill málsins
Framlögð fyrirspurn Íbúasamtaka Eskifjarðar frá 16.nóvember er varðar Edduborgarreitinn, aðbúnað veraldarvina og heilbrigðisþjónustu. Vísað til hlutaðeigandi starfsmanna með ósk um að minnisblöð verði lögð fyrir næsta fund bæjarráðs.
-
8. Gjaldskrá í íþróttamannvirkjum og skólum 2011
Mál 1011167 Allur ferill málsins
Framlögð greinargerð fræðslustjóra frá 26.nóvember. Bæjarráð samþykkir breytingar á gjaldskrám.
-
9. Gjaldskrá félagslegrar heimaþjónustu
Mál 1011150 Allur ferill málsins
Bæjarráð samþykkir breytingar á gjaldskrá.
-
10. Gjaldskrá fyrir hunda- og kattarhald í Fjarðabyggð árið 2011
Mál 1011013 Allur ferill málsins
Framlögð tillaga mannvirkjastjóra frá 17.nóvember. Bæjarráð samþykkir breytingar á gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald.
-
11. Gjaldskrá Sorpmiðstöðvar fyrir árið 2011
Mál 1011011 Allur ferill málsins
Framlögð tillaga mannvirkjastjóra frá 21.nóvember. Bæjarráð samþykkir breytingar á gjaldskrá Sorpmiðstöðvar.
-
12. Gjaldskrár Hitaveitu Fjarðabyggðar árið 2011
Mál 1011001 Allur ferill málsins
Framlögð tillaga mannvirkjastjóra frá 8.nóvember. Bæjarráð samþykkir breytingar á gjaldskrá Hitaveitu Fjarðabyggðar.
-
13. Gjaldskrá Vatnsveitu Fjarðabyggðar, aukavatnsskattur
Mál 1011012 Allur ferill málsins
Framlögð tillaga mannvirkjastjóra frá 8.nóvember. Bæjarráð samþykkir breytingar á gjaldskrá Vatnsveitu Fjarðabyggðar og að aukavatnsskattur verði 25 kr. m3
-
14. Fundagerð 781.fundar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Mál 1011170 Allur ferill málsins
Fundargerð lögð fram til kynningar.
-
15. Leiga á lóð á Hjallaleiru
Mál 1011074 Allur ferill málsins
Framlögð umsókn Yls ehf. um lóð að Hjallaleiru 23 Reyðarfirði undir rekstur steypustöðvar. Vísað til umsagnar mannvirkjastjóra og fjármálastjóra.
-
16. Fjárhagsáætlun 2011
Mál 1009099 Allur ferill málsins
Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins og fór yfir helstu lykiltölur og áætlunarstuðla. Drögum að fjárhagsáætlun 2011 vísað til bæjarstjórnar.