Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarstjórn

Bæjarstjórn, fundur 82

2. desember 2010, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Dagskrá

  1. 1. Fjárhagsáætlun 2011

    Mál 1009099 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri fylgdi áætluninni úr hlaði með greinargerð. Til máls tóku Jón Björn Hákonarson, Elvar Jónsson, Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, Guðmundur Þorgrímsson og Páll Björgvin Guðmundsson. Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að vísa fjárhagsáætlun 2011 fyrir Fjarðabyggð og stofnanir til síðari umræðu 16.desember.

  2. 2. Bæjarráð - 223

    Fundargerðin í heild

    Til máls tóku Jón Björn Hákonarson, Elvar Jónsson, Páll Björgvin Guðmundsson og Guðmundur Þorgrímsson. Bókun Fjarðalistans varðandi 4.lið fundargerðar bæjarráðs nr. 223."Bæjarfulltrúar Fjarðalistans styðja ákvörðun bæjarráðs þess efnis að veita ekki þann styrk til  Ungmenna og íþróttasambands Austurlands (ÚÍA) sem beðið er um í 4.lið í fundargerð 223. fundar bæjarráðs. Við leggjum þó áherslu á mikilvægi íþróttastarfs og horfum þar m.a. til forvarnagildis þess en ekki síður mikilvægi þeirrar starfsemi varðandi ímynd og markaðssetningu Fjarðabyggðar. Þess vegna teljum við mikilvægara að þeir fjármunir sem veittir eru í þennan málaflokk fari óskiptir til starfsemi íþróttafélaga innan Fjarðabyggðar. ÚÍA er ekki með lögheimili í Fjarðabyggð og við viljum sjá starfsemi sambandsins með skýrari hætti hér í Fjarðabyggð áður en við tökum þátt í að veita þann styrk sem beðið er um"   Fundargerð bæjarráðs frá 29.nóvember samþykkt með 9 atkvæðum.

    1. 2.1 Endurskoðaður samningur um hlutverk Skólaskrifstofu Austurlands1011099
    2. 2.2 Aðalfundur Leikfélags Reyðarfjarðar 2010 - Ályktun1011200
    3. 2.3 Árgjöld sveitarfélaga til Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands1009205
    4. 2.4 Framlög til starfsemi Ungmenna og íþróttasambands Austurlands 20111011199
    5. 2.5 Jólasjóður - aðstoð fyrir jólin1011032
    6. 2.6 Lok afskriftartíma grunnskóla frá ríki til sveitafélaga1011007
    7. 2.7 Íbúsamtök Eskifjarðar - Fyrirspurnir til bæjarráðs í nóvember 20101011115
    8. 2.8 Gjaldskrá í íþróttamannvirkjum og skólum 20111011167
    9. 2.9 Gjaldskrá félagslegrar heimaþjónustu1011150
    10. 2.10 Gjaldskrá fyrir hunda- og kattarhald í Fjarðabyggð árið 20111011013
    11. 2.11 Gjaldskrá Sorpmiðstöðvar fyrir árið 20111011011
    12. 2.12 Gjaldskrár Hitaveitu Fjarðabyggðar árið 20111011001
    13. 2.13 Gjaldskrá Vatnsveitu Fjarðabyggðar, aukavatnsskattur1011012
    14. 2.14 Fundagerð 781.fundar Sambands íslenskra sveitarfélaga1011170
    15. 2.15 Leiga á lóð á Hjallaleiru1011074
    16. 2.16 Fjárhagsáætlun 20111009099
  3. 3. Fræðslu- og frístundanefnd - 7

    Fundargerðin í heild

    Enginn tók til máls. Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar frá 24.nóvember samþykkt með 9 atkvæðum.

  4. 4. Fundargerðir félagsmálanefndar 2010

    Mál 1011073 Allur ferill málsins

    Enginn tók til máls. Fundargerð félagsmálanefndar frá 22.nóvember samþykkt með 9 atkvæðum.