Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 224

6. desember 2010, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 84 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs teknar saman til umræðu og afgreiðslu.Til máls tóku:  Jón Björn Hákonarson, Jens Garðar Helgason, Valdimar O Hermannsson, Elvar Jónsson, Sævar Guðjónsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Stefán Már Guðmundsson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Guðmundur Þorgrímsson, Ásta Kristín Sigurjónsdóttir.Staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Samningur um rekstur Félagsheimilisins Egilsbúðar.

    Mál 0903103 Allur ferill málsins

    Bréf Ölvers ehf, rekstraraðila Egilsbúðar, frá 2.desember er varðar ósk um lausn frá samningi um rekstur Egilsbúðar.  Bæjarráð samþykkir ósk rekstraraðila um lausn frá samningi og felur forstöðumanni stjórnsýslu að vinna málið frekar fyrir næsta fund.

  2. 2. Samdráttur í löggæslu í Fjarðabyggð

    Mál 1012018 Allur ferill málsins

    Bréf formanns Lögreglufélags Austurlands frá 30.nóvember er varðar samdrátt í löggæslu í Fjarðabyggð og breytingar á bakvaktafyrirkomulagi.  Bæjarráð mótmælir harðlega fyrirhuguðum samdrætti hjá lögreglunni í Fjarðabyggð og óskar eftir að dómsmála- og mannréttindaráðherra eigi fund með bæjaryfirvöldum í Fjarðabyggð svo fljótt sem kostur er.

  3. 3. Umsókn um uppbyggingarstyrk vegna golfvalla GKF 2010-2012

    Mál 1012001 Allur ferill málsins

    Beiðni Golfklúbbs Fjarðabyggðar frá 30.nóvember um uppbyggingarstyrk.  Bæjarráð hefur ekki tök á að verða við beiðni um styrk.

  4. 4. Hluthafafundur - Eignarhaldsfélagsins Fasteignar hf 7.desember 2010

    Mál 1011225 Allur ferill málsins

    Hluthafafundur verður haldinn í Háskólanum í Reykjavík þriðjudaginn 7.desember kl. 16:00.  Bæjarstjóri og fjármálastjóri verða fulltrúar á fundinum og mun bæjarstjóri fara með umboð bæjarráðs á honum.

  5. 5. 740 Kauptilboð, Nesbakki 19, íbúð 0202

    Mál 1012016 Allur ferill málsins

    Minnisblað mannvirkjastjóra frá 2.desember. Bæjarráð samþykkir 6,5 milljóna kr. kauptilboð í Nesbakka 19 - íbúð 0202 - Salan var einnig samþykkt í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd á fundi 2.desember.

  6. 6. Rekstrarstyrkur við Sjónarhól 2011

    Mál 1011095 Allur ferill málsins

    Bréf framkvæmdastjóra Sjónarhóls frá 8.nóvember þar sem óskað er eftir rekstrarstyrk. Bæjarráð getur ekki orðið við beiðni um styrk.

  7. 7. Íbúsamtök Eskifjarðar - Fyrirspurnir til bæjarráðs í nóvember 2010

    Mál 1011115 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað mannvirkjastjóra frá 3.desember vegna fyrirspurna Íbúasamtaka Eskifjarðar.

  8. 8. Reglur um heimaþjónustu

    Mál 1011149 Allur ferill málsins

    Bæjarráð samþykkir reglur um heimaþjónustu.

  9. 9. Reglur um daggæslu barna í heimahúsum

    Mál 1011152 Allur ferill málsins

    Bæjarráð samþykkir reglur um daggæslu barna í heimahúsum.

  10. 10. Reglur um fjárhagsaðstoð

    Mál 1009112 Allur ferill málsins

    Bæjarráð samþykkir reglur um fjárhagsaðstoð.

  11. 11. Reglur um sérstakar húsaleigubætur

    Mál 1011151 Allur ferill málsins

    Bæjarráð samþykkir reglur um sérstakar húsaleigubætur.

  12. 12. Tilfærsla málefna fatlaðra til sveitarfélaga

    Mál 1007146 Allur ferill málsins

    Þennan lið fundarins sátu félagsmálastjóri og Arndís Ósk Jónsdóttir er var í símasambandi.  Arndís Ósk fór yfir helstu atriði vegna yfirfærslu á málefnum fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga í Fjarðabyggð.  Meirihluti bæjarráðs samþykkir að ráðið verði í nýtt starf þroskaþjálfa við félagsþjónustusvið Fjarðabyggðar. Jafnframt samþykkir meirihluti bæjarráðs að auglýsa ekki starfið á grundvelli 2.mgr. 8.gr. samkomulags, milli ríkis og sveitarfélaga frá 23.nóvember 2010, um tilfærslu á þjónustu við fatlaða. Meirihluti bæjarráðs felur félagsmálastjóra að ganga til samninga við núverandi starfsmann Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra í Fjarðabyggð. Ráðið verði í starfið tímabundið til 12 mánaða og það endurskoðað að þeim tíma liðnum.  Elvar Jónsson er á móti að ráða í starfið án auglýsingar.   <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

  13. 13. Fundargerðir barnaverndarnefndar 2010

    Mál 1011072 Allur ferill málsins

    Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 5 frá 25.nóvember lögð fram.

  14. 14. Hafnarstjórn - 78

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 78 frá 30.nóvember lögð fram.