Málefni Golfklúbbs Fjarðabyggðar
Mál 1012001 Fyrst á dagskrá 6. desember 2010, síðast 15. mars 2011. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Styrkir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2010
Bæjarráð, fundur 224 liður 3
Umsókn um uppbyggingarstyrk vegna golfvalla GKF 2010-2012
Beiðni Golfklúbbs Fjarðabyggðar frá 30.nóvember um uppbyggingarstyrk. Bæjarráð hefur ekki tök á að verða við beiðni um styrk.
-
Bæjarstjórn, fundur 84 liður 1.3
Fundargerðin „Bæjarráð - 224“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
Umsókn um uppbyggingarstyrk vegna golfvalla GKF 2010-2012
-
2011
Bæjarráð, fundur 237 liður 2
Þennan lið fundarins sátu fulltrúar Golfklúbbs Fjarðabyggðar þeir Sigurjón Baldursson, Björn Sumarliði Stefánsson og Sigfús Heiðar Ferdinandsson. Sigurjón fór yfir sögu klúbbsins og framkvæmdir en mikil aukning er á áhuga á golfíþróttinni hjá börnum og unglingum. Félagar í klúbbnum sem greiða árgjald, 16 ára og eldri, eru um 60. Samstarf golfklúbbsins við klúbbana á Eskifirði og Norðfirði er með ágætum. Rætt um styrki, framtíðaráform klúbbsins o.fl. Fulltrúar hinna golfklúbbana í Fjarðabyggð munu koma á næsta fund.