Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 78

30. nóvember 2010, kl. 17:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 224 liður 14

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 78 frá 30.nóvember lögð fram.

  • Bæjarstjórn, fundur 84 liður 4

    Til máls tóku:  Sævar Guðjónsson, Stefán Már Guðmundsson, Guðmundur Þorgrímsson.Staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fundargerð 333. fundar Hafnasambands Íslands

    Mál 1011084 Allur ferill málsins

    Fundagerð stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 333 dags. 5. nóvember 2010. Til kynningar.

  2. 2. Endurbygging Barksins

    Mál 0904043 Allur ferill málsins

    Gera þarf upplýsingaskilti við Barkinn þar sem gerð er grein fyrir sögu hans. Framkvæmdastjóri leggur til að menningarmálanefnd verði falið að koma með hugmynd að upplýsingaskilti. Hafnarstjórn samþykkti tillöguna.

  3. 3. Mengunarvarnamál

    Mál 1011207 Allur ferill málsins

    Framkvæmdastjóri fór yfir hugmynd um fyrirkomulag mengunarvarna hjá Fjarðabyggðarhöfnum. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að ganga til samninga við Slökkvilið Fjarðabyggðar.

  4. 4. Móttaka skipa á Norðfirði

    Mál 1008103 Allur ferill málsins

    Erindi frá hafnsögumanni Fjarðabyggðarhafna 20.ágúst 2010 og svar frá Siglingastofnun 17. nóv 2010 varðandi stærð skipa inn í Norðfjarðarhöfn. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að ræða við Siglingastofnun um vinnureglur fyrir Norðfjarðahöfn.

  5. 5. 735 Tillaga að frágangi fjöru frá frystihúsbryggju út fyrir sýsluskrifstofu.

    Mál 1011214 Allur ferill málsins

    Fyrir fundinum lá tillaga að grjótvörn og frágangi á fjöru frá frystihúsbryggjunni og út fyrir sýsluskrifstofu á Eskifirði. Hafnarstjórn samþykkir tillöguna fyriri sitt leiti.

  6. 6. Smábátahöfn Stöðvarfirði

    Mál 0910145 Allur ferill málsins

    Framkvæmdastjóri fór yfir stöðu framkvæmda við smábátahöfnina á Stöðvarfirði. Hafnarstjórn samþykkti að láta breyta legu nýju floteininganna í samræmi við fyrirliggjandi teikningar.

  7. 7. Áfamhaldandi framkvæmdir við klæðningu á Gamla garðinn á Stöðvarfirði

    Mál 1002079 Allur ferill málsins

    Kynnt staða undirbúnings teikningar fyrir áframhald vinnu við klæðningu á gamla garðinn á Stöðvarfirði. Hafnarstjórn sammála um að setja kanttré á restina á gamla garðinum samhliða áður ákveðinni klæðningu á hann.

  8. 8. Smábátahöfn Eskifirði

    Mál 0910146 Allur ferill málsins

    Framkvæmdastjóri fór yfir vinnu við endurskipulagningu smábátahafnarinnar á Eskifirði. Hafnarstjórn ákvað að fresta ákvörðun um varanlega staðsetningu olíubryggju.  Ákveðið var að framkvæmdastjóri í samvinnu við tæknisvið útfæri hagkvæmustu leið við snúning á núverandi trébryggju.

  9. 9. Fjárhagsáætlun 2011

    Mál 1009099 Allur ferill málsins

    Yfirferð yfir fjárhagsáætlun 2011 ásamt gjaldskrá.