Hafnarstjórn, fundur 79
4. janúar 2011, kl. 17:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 228 liður 11
Fundargerð lögð fram.
Dagskrá
-
1. Fundagerð 334.fundar stjórnar Hafnasambands Íslands
Mál 1012132 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands dags. 10. desember 2010. Kynnt.
-
2. Fundagerðir CI á árinu 2010
Mál 1002039 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Cruise Icelands frá 8. desember 2010. Til kynningar
-
3. Þátttaka í Seatrade Med í Cannes
Mál 1002109 Allur ferill málsins
Ferðaskýrsla vegna sölusýningar í Cannes í nóvember 2010. Kynnt. Einnig farið yfir vinnuáætlun næstu 5 mánaða sem felur í sér m.a. samskipti við ferðaskrifstofur og sölusýningu á Miami.Hafnarstjórn samþykkir að bæta við einum gjaldalið í gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna, farþegagjaldi sem verður 50 kr. á farþega. Hafnarstjórn sendir ákvörðunina til samþykktar í bæjarráði.
-
4. Aðalfundarboð Fiskmarkaðs Austurlands 28.október 2010
Mál 1010111 Allur ferill málsins
Bréf frá Fiskmarkaði Austurlands dags. 16. desember 2010 þar sem tilkynnt er um greiðslu arðs til hluthafa. Kynnt.
-
5. Mengunarvarnamál
Mál 1011207 Allur ferill málsins
Drög að samningi við slökkvilið Fjarðabyggðar vegna umsjónar með mengunarvarnarbúnaði lagður fyrir hafnarstjórn. Hafnarstjórn samþykkir fyrirliggjandi samning.
-
6. Smábátahöfn Eskifirði
Mál 0910146 Allur ferill málsins
Fyrir fundinum lá minnisblað vegna framkvæmda við smábátahöfnina á Eskifirði og niðurrekstur staura við snúning eldri flotbryggju að grjótgarðinum. Hafnarstjórn samþykkti að reka niður staura út að enda á grjótgarðinum í framhaldi af því sem búið er eins og fyrirhugað var skv. teikningu af höfninni.