Bæjarráð, fundur 228
11. janúar 2011, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Dagskrá
-
1. Heimsókn umhverfisráðherra 13.janúar 2011
Mál 1101090 Allur ferill málsins
Þennan lið fundarins sátu mannvirkjastjóri og umhverfisstjóri. Undirbúningur að fundi með umhverfisráðherra en umhverfisstjóri gerði grein fyrir efni fundar bæjarráðs o.fl. með ráðherra nk. fimmtudag á Reyðarfirði.
-
2. Leigusamningur um aðstöðu til rekstrurs líkamsræktarstöðvar á Norðfirði
Mál 1010108 Allur ferill málsins
Þennan lið fundarins sátu fjármálastjóri og fræðslustjóri. Framlagt minnisblað fræðslustjóra frá 11.janúar um samningslok og uppgjör milli Fjarðabyggðar og Heilsubyltingar um rekstur líkamsræktarstöðvar í Neskaupstað. Bæjarráð samþykkir tillögu í minnisblaði um að Íþróttamiðstöðin í Neskaupstað taki yfir rekstur líkamsræktarstöðvarinnar frá og með 17.janúar nk. en miðað er við að yfirtaka leiði ekki til aukins rekstrarkostnaðar fyrir Íþróttamiðstöðina.
-
3. Framlög til starfsemi Ungmenna og íþróttasambands Austurlands 2011
Mál 1011199 Allur ferill málsins
Hildur Bergsdóttir framkvæmdastjóri og Elín Rán Björnsdóttir formaður ÚÍA sátu þennan lið fundarins. Rætt um beiðni ÚÍA um íbúaframlag en fram kom að helstu tekjur ÚÍA eru af lottó. Farið var yfir helstu viðburði á vegum ÚÍA og skipulag sambandsins. Rætt um unglingalandsmótið, sem haldið verður á Egilsstöðum um verslunarmannahelgina, en ÚÍA sér um framkvæmd mótins. Framlögð samantekt yfir mótahald og aðra starfsemi ÚÍA í Fjarðabyggð árið 2010.
-
4. Byggðakvóti fiskveiðiársins 2010-2011
Mál 1009212 Allur ferill málsins
Lögð fram og farið yfir drög að sérstökum skilyrðum Fjarðabyggðar vegna byggðakvóta fiskveiðiársins 2010 - 2011. Bæjarráð samþykkir drögin samhljóða og vísar þeim til samþykktar í bæjarstjórn. Bæjarráð felur jafnframt bæjarstjóra að ganga frá bréfi til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis vegna þessa.
-
5. Samþykkt um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar Fjarðabyggðar
Mál 1006231 Allur ferill málsins
Framlagt nýtt skipurit Fjarðabyggðar og minnisblað bæjarráðs frá 11.janúar. Bæjarráð vísar skipuriti til afgreiðslu bæjarstjórnar.
-
6. Gjaldskrár Rafveitu Reyðarfjarðar fyrir árið 2011
Mál 1011002 Allur ferill málsins
Bæjarráð samþykkir tillögu um 3% hækkun á dreifigjaldskrá Rafveitu Reyðarfjarðar.
-
7. Atvinnuleysistölur fyrir Austurland - Janúar 2011
Mál 1101043 Allur ferill málsins
Atvinnuleysistölur í janúar 2011 lagðar fram til kynningar. Forstöðumanni stjórnsýslu falið að óska eftir nánari upplýsingum.
-
8. Innanríkisráðuneyti tekur til starfa.
Mál 1101035 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar.
-
9. Breyting á gjaldskrá hafnanna
Mál 1002109 Allur ferill málsins
Breyting á gjaldskrá hafnanna vísað frá hafnarstjórn. Um er að ræða farþegagjald sem verður 50 kr. á farþega. Bæjarráð samþykkir farþegagjaldið.
-
10. Samningsumboð SFR
Mál 1101098 Allur ferill málsins
Bæjarráð veitir Sambandi íslenskra sveitarfélaga samningsumboð gagnvart SFR - stéttarfélagi í almannaþjónustu.
-
11. Hafnarstjórn - 79
Fundargerð lögð fram.
-
12. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 11
Fundargerð lögð fram.