Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 229

18. janúar 2011, kl. 17:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Dagskrá

  1. 1. Bréf um fjárhagsaðstoð sveitarfélaga

    Mál 1101059 Allur ferill málsins

    Félagsmálastjóri sat þennan lið fundarins. Bréf velferðarráðuneytisins frá 3.janúar og minnisblað félagsmálastjóra frá 16.janúar er varða fjárhagsaðstoð sveitarfélaga og stöðu mála í Fjarðabyggð.  Málið rætt og félagsmálastjóra falið að vinna áfram með fjárhagsaðstoð á sömu forsendum og verið hefur.

  2. 2. Stefnumótun félagsþjónustusviðs Fjarðabyggðar fyrir árið 2011

    Mál 1101058 Allur ferill málsins

    Félagsmálastjóri sat þennan lið fundarins. Félagsmálanefnd samþykkti á fundi 10.janúar að vinna að stefnumótun um félagsþjónustu í samstarfi við Fljótsdalshérað. Stefnumótunin byggir á samningum allra sveitarfélaga á Austurlandi um yfirtöku á málefnum fatlaðra.  Bæjarráð samþykkir tillögu félagsmálanefndar.

  3. 3. Tilfærsla málefna fatlaðra til sveitarfélaga

    Mál 1007146 Allur ferill málsins

    Félagsmálastjóri sat þennan lið fundarins. Samantekt félagsmálastjóra um stöðu mála vegna yfirfærslu á málefnum fatlaðra lögð fram til kynningar.

  4. 4. Reglugerð um hollustuhætti á sund- og baðstöðum

    Mál 1101012 Allur ferill málsins

    Ósk fræðslu- og frístundanefndar frá 12.janúar um breytingu á reglugerð nr.814/2010 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum. Framlögð minnisblöð fræðslustjóra frá 9.janúar og 12.janúar er varða viðmið vegna 10 ára aldurtakmarks og skilyrði vegna laugargæslu.  Bæjarráð felur bæjarstjóra að fylgja eftir bókun fræðslu- og frístundanefndar.

  5. 5. Atvinnuleysistölur fyrir Austurland - Janúar 2011

    Mál 1101043 Allur ferill málsins

    Nánari upplýsingar um atvinnuleysistölur í janúar lagðar fram til kynningar og vísað til atvinnu- og menningarnefndar.

  6. 6. Byggðakvóti fiskveiðiársins 2010-2011

    Mál 1009212 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Vigfúsar Vigfússonar f.h. Ölduóss ehf. frá 12.janúar er varðar byggðakvóta. Stjórnsýslustjóra falið að svara erindinu á grundvelli reglugerðar sjávarútvegsráðuneytisins og skilyrða Fjarðabyggðar vegna úthlutunar á byggðakvóta.

  7. 7. Drög að frumvarpi nýrra sveitarstjórnarlaga

    Mál 1101139 Allur ferill málsins

    Frestur til að skila inn umsögnum, vegna draga að frumvarpi til nýrra sveitarstjórnarlaga, er til 23.janúar. Bæjarráð felur bæjarstjóra að koma á framfæri athugasemdum vegna tímaramma fjárhagsáætlunar.

  8. 8. Endurskoðun á undanþágulista vegna verkfalla

    Mál 1101156 Allur ferill málsins

    Minnisblað mannauðsstjóra frá 14.janúar. Bæjarráð staðfestir framlagðan lista og samþykkir framlögð drög að auglýsingu vegna starfa er falla undir 5.- 8 .tl. 19.gr. laga nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna og veitir tilgreindum störfum undanþágu frá verkfallsrétti.

  9. 9. Starfshópur um almenningssamgöngur

    Mál 1101197 Allur ferill málsins

    Drög að erindisbréfi fyrir starfshóp um almenningssamgöngur lagt fram til kynningar.

  10. 10. Fundargerðir félagsmálanefndar 2011

    Mál 1101152 Allur ferill málsins

    Fundargerð félagsmálanefndar frá 10.janúar lögð fram.

  11. 11. Fundargerðir barnaverndarnefndar 2011

    Mál 1101153 Allur ferill málsins

    Fundargerð barnaverndarnefndar frá 13.janúar lögð fram.

  12. 12. Atvinnu- og menningarnefnd - 8

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð atvinnu- og menningarnefndar frá 11.janúar lögð fram.

  13. 13. Fræðslu- og frístundanefnd - 9

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar frá 12.janúar lögð fram.