Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2011

Reglugerð um hollustuhætti á sund- og baðstöðum

Mál 1101012 Fyrst á dagskrá 4. janúar 2011, síðast 18. janúar 2011. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2011

    Bæjarráð, fundur 227 liður 13

    Fræðslustjóri sat þennan lið fundarins og gerði grein fyrir helstu breytingum sem reglugerðin hefur í för með sér. Reglugerðin verður tekin fyrir á fundi fræðslu- og frístundanefndar í næstu viku.

  2. Bæjarráð, fundur 229 liður 4

    Ósk fræðslu- og frístundanefndar frá 12.janúar um breytingu á reglugerð nr.814/2010 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum. Framlögð minnisblöð fræðslustjóra frá 9.janúar og 12.janúar er varða viðmið vegna 10 ára aldurtakmarks og skilyrði vegna laugargæslu.  Bæjarráð felur bæjarstjóra að fylgja eftir bókun fræðslu- og frístundanefndar.