Leigusamningur um aðstöðu til rekstrurs líkamsræktarstöðvar á Norðfirði
Mál 1010108 Fyrst á dagskrá 4. janúar 2011, síðast 11. janúar 2011. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð.
Í heiti málsins: Neskaupstaður og Norðfjörður
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2011
Bæjarráð, fundur 227 liður 7
Samningur um Heilsubyltingu rann út 31.desember 2010. Rætt um framtíðar fyrirkomulag líkamsræktar í Neskaupstað. Fræðslustjóra falið að koma með tillögu að fyrirkomulagi líkamsræktar í Neskaupstað fyrir næsta fund bæjarráðs.
-
Bæjarráð, fundur 228 liður 2
Þennan lið fundarins sátu fjármálastjóri og fræðslustjóri. Framlagt minnisblað fræðslustjóra frá 11.janúar um samningslok og uppgjör milli Fjarðabyggðar og Heilsubyltingar um rekstur líkamsræktarstöðvar í Neskaupstað. Bæjarráð samþykkir tillögu í minnisblaði um að Íþróttamiðstöðin í Neskaupstað taki yfir rekstur líkamsræktarstöðvarinnar frá og með 17.janúar nk. en miðað er við að yfirtaka leiði ekki til aukins rekstrarkostnaðar fyrir Íþróttamiðstöðina.