Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 77

27. október 2010, kl. 18:00 til 20:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

Dagskrá

  1. 1. Aðalfundarboð Fiskmarkaðs Austurlands 28.október 2010

    Mál 1010111 Allur ferill málsins

    Bréf dags. 15. október 2010 þar sem boðað er til aðalfundar Fiskmarkaðar Austurlands þann 28. október 2010. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að vera aðalfulltrúi á fundinum og framfylgja ákvörðun hafnarstjórnar varðandi hugsanleg kaup hlutafjár.

  2. 2. Fundagerðir CI á árinu 2010

    Mál 1002039 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar Cruise Iceland 12. október 2010. Kynnt.

  3. 3. Beiðni um undanþágu til að taka lóðs - skipstjóri Mv S.Rafael

    Mál 1010140 Allur ferill málsins

    Erindi frá Eimskipafélagi Íslands ehf dags. 14. október 2010 þar sem farið er fram á undanþágu frá hafnsöguskyldu og byggir erindið á heimild í hafnarreglugerð Fjarðabyggðar. Ásamt svari hafnarinnar við erindinu. Hafnarstjórn staðfestir erindið.

  4. 4. Óskað eftir leyfi til uppsetningar á nótaleggjara á hafnarkant

    Mál 1010151 Allur ferill málsins

    Bréf frá Mannviti f.h. Egersund á Eskifirði dags. 20. október 2010 þar sem óskað er eftir heimild til að koma fyrir nótaleggjara á hafnarkantinn við netaverkstæðið. Hafnarstjórn samþykkir að veita heimild fyrir uppsetningu nótaleggjara.

  5. 5. Íslenska sjávarútvegssýningin 2011

    Mál 1010052 Allur ferill málsins

    Boð um þátttöku á Íslensku sjávarútvegssýningunni 22. til 24. september 2011 sem halda á í Smáranum í Kópavogi. Hafnarstjórn hafnar þátttöku.

  6. 6. Ósk um aukningu á framlagi til Sjóminjasafn Austurlands 2010

    Mál 1010063 Allur ferill málsins

    Erindi dags. 8. október 2010 frá forstöðumanni Safnastofnunar Fjarðabyggðar þar sem óskað er eftir framlagi til Sjóminjasafns Austurlands á árinu 2011.  Hafnarstjórn ákvað að fresta afgreiðslu þessa máls og fjalla um það síðar í tengslum við önnur málefni Sjóminjasafnsins.

  7. 7. Undirbúningsvinna vegna komu skemmtiferðaskipa

    Mál 1005131 Allur ferill málsins

    Umræða um útvíkkun samnings vegna undirbúnings komu skemmtiferðaskipa til Fjarðarbyggðar. Fyrir fundinum lágu drög að verktakasamningi.  Hafnarstjórn samþykkir samninginn fyrir sitt leiti en vísar honum til staðfestingar í bæjarráði.

  8. 8. Fjárhagsáætlun 2011

    Mál 1009099 Allur ferill málsins

    Umfjöllun um fjárhagsáætlun hafnarsjóðs fyrir árð 2011. Hafnarstjórn samþykkti drög að fjárhagsáætlun og vísar þeim til bæjarráðs.