Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 214

5. október 2010, kl. 16:00 til 18:30, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 78 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 213 og nr. 214 teknar fyrir saman. Til máls tóku Elvar Jónsson, Valdimar O. Hermannsson, Jens Garðar Helgason, Páll Björgvin Guðmundsson og Jón Björn Hákonarson.  Ályktun bæjarstjórnar Fjarðabyggðar og stærstu fyrirtækja sveitarfélagsins gegn áformum um stórfelldan niðurskurð í helibrigðismálum á Austurlandi. Bæjarstjórn Fjarðabyggðar og fyrirtæki innan sveitarfélagsins, Alcoa-Fjarðaál, Síldarvinnslan, Loðnuvinnslan, Eskja, Launafl og VHE mótmæla harðlega boðuðum niðurskurðaráformum stjórnvalda, er varða Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA), eins og þau koma fram í framlögðu frumvarpi til fjárlaga 2011. Boðaður er 22,1 %  niðurskurður á heildarframlögum til HSA og þar af 52 % niðurskurður á sjúkrasviði stofnunarinnar sem koma mun mjög harkalega niður á starfsemi Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað (FSN) og lama starfsemi þess.  Í Fjarðabyggð verður til fjórðungur gjaldeyristekna þjóðarinnar innan hinna sterku fyrirtækja í iðnaði og sjávarútvegi  en  taka verður tillit til þessarar miklu starfsemi og öryggis starfsmanna þeirra. Eitt af lykilatriðum í þeirri ákvörðun Alcoa  að reisa álver sitt á Reyðarfirði var nálægð við sjúkrahúsið í Neskaupstað og öflug heilsugæsla í fjórðungnum.   Verði af þessum aðgerðum ber að hafa í huga þær vegalengdir sem íbúar Austurlands munu þurfa að leggja á sig til að sækja sjúkrahúsþjónustu til Akureyrar og Reykjavíkur en þær munu  veikja verulega öryggissjónarmið innan fjórðungsins að ótöldum þeim hundruðum sjómanna sem stunda veiðar út af Austurlandi.. Þá sé horft til náttúruhamfara sem, eins og dæmin sýna,  hafa skollið á byggðarlögum. Má í því sambandi nefna snjóflóðin í Neskaupstað 1974.  Niðurskurðaráform stjórnvalda munu án nokkurs vafa leiða til aukins atvinnuleysis á Austurlandi, meðal annars í kvennastörfum sem skortur er á hér um slóðir, og fýsileiki svæðisins til búsetu og atvinnurekstrar minnkar til muna.  Því skora áðurnefndir aðilar á heilbrigðisráðherra að endurskoða boðuð niðurskurðaráform. Alþingismenn Norðausturkjördæmis eru hvattir til að beita sér fyrir endurskoðun á fjárheimildum til HSA eins og þau liggja nú fyrir. Ályktun samþykkt með 9 atkvæðum.  Liður 2.17. - Ráðningarsamningur við bæjarstjóra - borinn upp sérstaklega og samþykktur með 9 atkvæðum. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />Fundargerð samþykkt að öðru leyti af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2011 - Bæjarráð

    Mál 1009132 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf bæjarstjóra frá 17.september er varðar fjárhagsramma sameiginlegs kostnaðar og brunamála og almannavarna.  Vísað til viðeigandi sviðsstjóra.  Fjallað verður um fjárhagsáætlun 2011 og hagræðingarleiðir á fundi bæjarráðs miðvikudaginn 13.október.

  2. 2. Edduborgarreiturinn Eskifirði - umgengni

    Mál 0909044 Allur ferill málsins

    Bréf Ingólfs Friðjónssonar, f.h. Frjálsa Fjárfestingabankans, frá 22.september og tillaga mannvirkjastjóra frá 1.október til eigna-, skipulags og umhverfisnefndar.  Bankinn býðst til að afsala fasteignunum að Útkaupstaðarbraut 2, Strandgötu 39a og Grjótagötu 2 á Eskfirði til Fjarðabyggðar án endurgjalds þannig að hvorki Fjarðabyggð né Frjálsi Fjárfestingarbankinn eigi kröfur á mótaðila.  Bæjarráð samþykkir tillögu eigna, skipulags- og umhverfisnefndar um að taka tilboði Frjálsa fjárfestingarbankans hf. um yfirtöku allra eigna á Edduborgarreitnum án nokkurra kvaða. Fjarðabyggð mun einnig afsala sér öllum kröfum á hendur Frjálsa fjárfestingarbankans.  Bæjarráð felur mannvirkjastjóra jafnframt  áframhaldandi vinnu við yfirtöku á eignum á Edduborgarreitnum.

  3. 3. Lóðarframkvæmdir við Breiðablik

    Mál 1009185 Allur ferill málsins

    Bréf starfsmanna og íbúa Breiðabliks frá 21.september þar sem farið er fram á að lóðaframkvæmdir verði kláraðar í haust.  Mannvirkjastjóra falið að láta ganga frá viðgerð á lóð innan ramma fjárhagsáætlunar.

  4. 4. Kynning á tillögu að starfsleyfi fyrir Alcoa Fjarðaál

    Mál 1008079 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað mannvirkjastjóra til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 30.september vegna tillögu að nýju starfsleyfi fyrir álver Alcoa-Fjarðaáls.  Umsagnarfrestur um tillöguna er til 14.október.  Bæjarráð felur mannvirkjastjóra að vinna áfram samkvæmt tillögum minnisblaðsins.

  5. 5. Samvinna vinabæja Fjarðabyggðar

    Mál 1002098 Allur ferill málsins

    Lögð fram drög að dagskrá vinabæjarheimsóknar 5.-7.október.

  6. 6. Aðalfundur HAUST bs. 2010

    Mál 1009034 Allur ferill málsins

    Aðalfundur Heilbrigðiseftirlits Austurlands verður haldinn á Djúpavogi miðvikudaginn 6.október kl.14:00. Mannvirkjastjóri verður fullltrúi Fjarðabyggðar á fundinum og fer með atkvæði bæjarins.

  7. 7. Ráðstefna um almannavarnir sveitarfélaga 21.október 2010 á Grand Hótel Reykjavík

    Mál 1009215 Allur ferill málsins

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að sækja ráðstefnuna.

  8. 8. Hættumat fyrir Oddsskarð

    Mál 1009201 Allur ferill málsins

    Kynningarfundur vegna hættumats fyrir Oddsskarð verður haldinn miðvikudaginn 13.október.  Mannvirkjastjóri, formaður eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar, fræðslustjóri og forstöðumaður Skíðamiðstöðvarinnar munu sækja kynninguna.

  9. 9. Árgjöld sveitarfélaga til Avinnuþróunarsjóðs Austurlands

    Mál 1009205 Allur ferill málsins

    Bréf formanns stjórnar frá 23.september þar sem tilkynnt er að sjóðurinn reikni með að framlög frá sveitarfélögunum verði með sambærilegum hætti á næsta ári og árið 2009.  Erindið vísað til fjárhagsáætlunar 2011.

  10. 10. Aðalfundur Raflagna Austurlands 16.september 2010

    Mál 1009055 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar fundargerð aðalfundar og minnisblað Steinþórs Péturssonar en Steinþór sat aðalfundinn.

  11. 11. Kynningarfundur vegna rannsókna á samfélagsáhrifum álvers- og virkjunarframkvæmda

    Mál 1009218 Allur ferill málsins

    Kynningarfundur verður í Fróðleiksmolanum Reyðarfirði fimmtudaginn 7.október frá 10:00 - 12:00.  Bæjarstjóri mun sækja fundinn.

  12. 12. Fyrirspurn um Samband sveitarfélaga á Austurlandi og Fjarðabyggð

    Mál 1009220 Allur ferill málsins

    Fyrirspurn Ásmundar Ásmundssonar frá 27.september er varðar SSA.  Forstöðumanni stjórnsýslu falið að taka saman svar við erindinu.

  13. 13. Fundur sveitarstjórnar með fjárlaganefnd Alþingis haustið 2010

    Mál 1009073 Allur ferill málsins

    Fjarfundur verður með fjárlaganefnd Alþingis í Fróðleiksmolanum miðvikudaginn 13.október kl.9:00.

  14. 14. Íslandshátíð í Gravelines

    Mál 1006248 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri gerði grein fyrir ferð til Graveline sem farin var í síðasta mánuði.

  15. 15. Hluthafafundur 1.október 2010 í Lánasjóði sveitarfélaga

    Mál 1009138 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri gerði grein fyrir efni og helstu niðurstöðum fundarins.

  16. 16. Samningur við bæjarstjóra

    Mál 1010026 Allur ferill málsins

    Framlagður ráðningarsamningur sem bæjarráð gerði við bæjarstjóra 29.júlí 2010.  Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.

  17. 17. Beiðni um styrk vegna útgáfu á geisladisk

    Mál 1010015 Allur ferill málsins

    Bæjarráð vísar beiðni til atvinnu- og menningarnefndar til afgreiðslu.

  18. 18. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 4

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð lögð fram.

  19. 19. Atvinnu- og menningarnefnd - 3

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð lögð fram.

  20. 20. Félagsmálanefnd - 2

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð lögð fram.

  21. 21. Hafnarstjórn - 74

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð lögð fram.

  22. 22. Barnaverndarnefnd - fundur nr. 2

    Mál 1010013 Allur ferill málsins

    Fundargerð lögð fram.