Bæjarráð, fundur 215
12. október 2010, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 79 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs 215, 216 og 217 teknar til umræðu saman.Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Elvar Jónsson, Valdimar O Hermannsson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, Sævar Guðjónsson.Fundardargerð staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Umsókn um lóð við Mjóeyrarhöfn
Mál 2009-02-13-215 Allur ferill málsins
Þennan lið fundarins sátu fulltrúar frá Mannviti þeir Haukur Óskarsson, Valgeir Kjartansson, Eyjólfur Árni Rafnsson auk framkvæmdastjóra hafnanna og formanns hafnarstjórnar.
-
2. Byggðakvóti fiskveiðiársins 2010-2011
Mál 1009212 Allur ferill málsins
Bréf sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins frá 27.september.Bæjarráð samþykkir að sótt verði um byggðarkvóta fyrir alla byggðakjarna. Bæjarstjóra falið að ganga frá umsókn.
-
3. Úthlutun Sjávarútvegs-og landbúnaðarráðuneytsins á leyfum til veiða á Sæbjúga
Mál 1009066 Allur ferill málsins
Svar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins vegna fyrirspurnar bæjarráðs frá því í síðasta mánuði.Bæjarráð lýsir yfir vonbrigðum með niðurstöðu ráðuneytisins. Bæjarstjóra falið að ítreka fyrri beiðnir og óska eftir því að leyfi verði veitt.
-
4. Almenningssamgöngur - Kynning á Evrópusambandsverkefni
Mál 1004103 Allur ferill málsins
Tillaga Eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá fundi 4.október "Nefndin leggur til við bæjarráð að farið verði í viðræður við Vegagerðina um að sveitarfélagið taki yfir sérleyfið, með það í huga að endur-skipuleggja almenningssamgöngur innan sveitarfélagsins. Jafnframt er lagt til að stofnaður verði samráðshópur hagsmunaraðila til að vinna að verkefninu með sveitarfélaginu og Þróunarfélagi Austurlands"Bæjarstjóra falið að skipa fulltrúa Fjarðabyggðar í starfshóp um samgöngumál í Fjarðabyggð og ganga frá bréfi til Vegagerðar ríkisins og Alcoa Fjarðaáls um tilnefningu af þeirra hálfu í starfshópinn.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
-
5. Samkeppni um hönnun nýrrar Hulduhlíðar
Mál 0912043 Allur ferill málsins
Bréf starfsmanna Hulduhlíðar frá 7.október.Bæjarráð samþykkir að boða til kynningarfundar með starfsfólki Hulduhlíðar þar sem farið verði yfir málið í heild sinni.
-
6. Vegna lóðar að Strandgötu 86b Eskifirði
Mál 2008-07-28-1251 Allur ferill málsins
Bréf Árna Helgasonar og Gísla Benediktssonar frá 28.september. Mannvirkjastjóra falið að svara erindi á grundvelli minnisblaðs.
-
7. Ársfundur Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum 2010
Mál 1010053 Allur ferill málsins
Ársfundur verður haldinn í Reykjavík föstudaginn 15.október kl. 14:00 á hótel Hilton Reykjavík Nordica.Bæjarstjóri fer með umboð Fjarðabyggðar á fundinum.
-
8. Kynning á tillögu að starfsleyfi fyrir Alcoa Fjarðaál
Mál 1008079 Allur ferill málsins
Lagt fram minnislbað mannvirkjastjóra, dagsett 12. október 2010.Bæjarráð samþykkir tillögu mannvirkjastjóra og felur honum að afgreiða umsögn til Umhverfisstofnunar.
-
9. Hafnarstjórn - 75
Fundargerð lögð fram.
-
10. Fræðslu- og frístundanefnd - 4
Fundargerð lögð fram.
-
11. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 5
Fundargerð lögð fram.
-
12. Atvinnu- og menningarnefnd - 4
Fundargerð lögð fram.