Bæjarráð, fundur 199
25. maí 2010, kl. 09:00 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Dagskrá
-
1. Gamli skólinn Eskifirði - Frá íbúasamtökum Eskifjarðar
Mál 1005159 Allur ferill málsins
Fyrirspurn Íbúasamtaka Eskifjarðar vegna gamla barnaskólans á Eskifirði. Vísað til umhverfissviðs með beiðni um umsögn fyrir næsta fund um stöðu hússins og annarra gamalla húsa í Fjarðabyggð.
-
2. Umbætur á vsk-umhverfi sveitarfélaganna
Mál 1005152 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar greinargerð frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga til stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga og endurskoðunarnefndar um tekjustofna sveitarfélaga.
-
3. Sorpurðun - Samstarf við Fljótsdalshérað, Seyðisfjarðarkaupstað og Fljótsdalshrepp
Mál 0905099 Allur ferill málsins
Mannvirkjastjóri sat þennan lið fundarins og fór yfir umsögn sína frá 24.maí um þau atriði sem helst þarf að horfa til og skoða áður en til samstarfs kæmi milli Fljótsdalshéraðs, Seyðisfjarðarkaupstaðar og Fljótsdalshrepps um sorpurðun.
-
4. Heildaryfirlit yfir framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga á árinu 2009
Mál 1003023 Allur ferill málsins
Lagt fram til upplýsinga.
-
5. Framtíð og uppbygging Sjóminjasafns Austurlands
Mál 1005192 Allur ferill málsins
Gunnar Jónsson stjórnarmaður sat þennan lið fundarins og fór yfir efni bréfs stjórnar Sjóminjasafns Austurlands frá 21.maí. er varðar geymsluhúsnæði og framtíð og uppbyggingu safnsins. Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til hafnarstjórnar.
-
6. Þakkarbréf fyrir framlag til Haítí
Mál 1005195 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar þakkarbréf Rauða kross Íslands frá 10.maí vegna framlags Fjarðabyggðar til hjálparstarfs á Haítí.
-
7. Ársreikningur Hulduhlíðar 2009
Mál 1005181 Allur ferill málsins
Ársreikningur lagður fram til kynningar.
-
8. Fundargerð 774. stjórnarfundar Samband íslenskra sveitarfélaga
Mál 1005151 Allur ferill málsins
Fundargerð lögð fram til kynningar.
-
9. Umsögn SSA og ÞFA við Stefnumótandi byggðaáætlun
Mál 1005202 Allur ferill málsins
Lögð fram til bókunar umsögn SSA og Þróunarfélags Austurlands frá 23.maí um Stefnumótandi byggðaáætlun 2010 - 2013.
-
10. Skólastjórastaða við Tónskóla Neskaupstaðar
Mál 1005185 Allur ferill málsins
Fræðslustjóri sat þennan lið fundarins. Framlagt minnisblað fræðslustjóra frá 21.maí en þar kemur fram að Ágúst Ármann Þorláksson skólastjóri Tónskóla Neskaupstaðar hefur sagt starfi sín lausu frá 1.september 2010. Bæjarráð felur fræðslustjóra að auglýsa starfið.
-
11. Fundargerð félagsmálanefndar nr. 35
Mál 1005150 Allur ferill málsins
Fundargerð lögð fram.
-
12. Hafnarstjórn - 70
Fundargerð lögð fram.
-
13. Menningar-, íþrótta- og ferðamálanefnd - 36
Fundargerð lögð fram.
-
14. Öldrunarþjónustunefnd - 20
Fundargerð lögð fram.
-
15. Fræðslunefnd - 30
Fundargerð lögð fram.
-
16. Umhverfis- og skipulagsnefnd - 44
Fundargerð lögð fram.
-
17. Mannvirkjanefnd - 33
Fundargerð lögð fram.