Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 200

1. júní 2010, kl. 09:00 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Dagskrá

  1. 1. Gamla kirkjan á Eskifirði

    Mál 0911022 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað forstöðumanns stjórnsýslu frá 26.maí þar sem fram koma upplýsingar frá eigendum um stöðu mála vegna ástands hússins.  Bæjarráð sammála um að halda á næstunni fund með stjórn íbúasamtakanna á Eskifirði.

  2. 2. Áhugi á rekstri líkamsræktarstöðvar í Neskaupstað

    Mál 1005196 Allur ferill málsins

    Bréf Fjólu Kr. Hólm Jóhannesdóttur og Vernu Sigurðardóttur frá 17.maí er varðar rekstur líkamsræktar í húsnæði sundlaugarinnar í Neskaupstað. Vísað til umsagnar æskulýðs- og íþróttafulltrúa.

  3. 3. Atvinnuleysi í apríl

    Mál 1005222 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar upplýsingar um atvinnuleysi á Austurlandi og í Fjarðabyggð í apríl.  Heldur dregur úr atvinnuleysi á milli mánaða.

  4. 4. Verkefni framundan

    Mál 1005250 Allur ferill málsins

    Bæjarstýra lagði fram og fór yfir minnisblað sitt frá 1.júní yfir verkefni sem liggja fyrir við sveitarstjórnarskipti. Einnig lagt fram yfirlit yfir helstu niðurstöður vinnustaðagreiningar og minnisblöð framkvæmdastjóra hafnanna og fræðslustjóra yfir helstu verkefni sem eru framundan og í vinnslu.

  5. 5. Ferjusiglingar Mjóifjörður

    Mál 0912093 Allur ferill málsins

    Farið var yfir málefni Fjarðaferða. Lagður fram tölvupóstur frá Páli Kr. Pálssyni formanni stjórnar Fjarðaferða frá 26.maí.

  6. 6. Valhöll - uppsögn leigu

    Mál 1005258 Allur ferill málsins

    Uppsögn Tandrabergs ehf. frá 31.maí vegna leigu Valhallar Eskifirði sem miðast við 31.ágúst nk.  Bæjarráð fellst á uppsögn og vísar málum Valhallar til mannvirkjasviðs.