Mannvirkjanefnd, fundur 33
19. maí 2010, kl. 16:30 til 18:30, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Jóhann Eðvald Benediktsson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 199 liður 17
Fundargerð lögð fram.
Dagskrá
-
1. Aðbúnaður barna og starfsmanna á leikskólanum Sólvöllum
Mál 0909028 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað mannvirkjastjóra, dagsett 19. maí 2010. Þar er lagt til að þakgluggum á leikskólanum Sólvöllum verði fjarlægðir og götum lokað. Mannvirkjanefnd samþykkir að turnum verði lokað.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
-
2. Aðbúnaður barna og starfsmanna á leikskólanum Sólvöllum
Mál 0909028 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar minnisblað fræðslustjóra, dagsett 17. maí 2010 um könnun á veikindum barna á leikskólum í Fjarðabyggð. En farið var í þessa vegna fyrirspurna frá foreldri barns á Sólvöllum. Niðurstöður ræddar.
-
3. Beiðni um viðhaldviðgerðir og endurbætur í Sigfúsarhúsi
Mál 0908049 Allur ferill málsins
Lögð fram tillaga að breytingu á Sigfúsarhúsi á Norðfirði, en tillagan var unnin í samvinnu við félag eldriborgara þar í bæ. Einnig er lagður fram tölvupóstur frá formanni félagsins þar sem kemur fram samþykki félagsins að fara í eftirfarandi breytingar. Mannvirkjanefnd samþykkir að framkvæma fyrir 750 þúsund sem eru á áætlun ársins og sér það helst fara í að bæta eldhúsaðstöðu og jafnframt hvetur mannvirkjanefnd komandi bæjarstjórn að gera heilstætt mat á húsnæðisþörf félags eldri borgara á Norðfirði.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
-
4. Förgun á menguðum jarðvegi
Mál 1005017 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar bréf dagsett 4. apríl unnið af Mannvit hf. fyrir mannvirkjasvið til umhverfisstofnunar, þar sem sótt er um leyfi til að koma menguðum jarðvegi fyrir í Þernunesi í lokaðri gryfju. Umhverfisstofnun hafnar beiðni Fjarðabyggðar í bréfi dagsettu 29. apríl. Ástæða höfnunarinnar er að umræddur jarðvegur er flokkaður sem spilliefni samkvæmt reglugerð nr. 184/2002 og í starfsleyfi fyrir urðunarstaðin í Þernunesi er ekki heimild til að urða spilliefni. Mannvirkjanefnd felur mannvirkjasviði að halda áfram með málið.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
-
5. Skatepark á Eskifirði
Mál 1005109 Allur ferill málsins
Lagður fram tölvupóstur dagsettur 11. maí 2010 frá Mörtu Kristjánsdóttir, þar sem kemur fram beiðni um svæði undir skatepark völl ásamt beiðni til Fjarðabyggðar um framlag í formi efnis til að byggja skate ramp. Mannvirkjanefnd tekur vel í erindið og sér fyrir sér að geta látið eitthvað efni í verkið en vísar erindi jafnframt til umhverfis- og skipulagsnefndar vegna staðsetningar.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
-
6. Stúkuframkvæmd við Eskifjarðavöll - Leyfiskerfi
Mál 1003091 Allur ferill málsins
Lögð fram samskipti milli Fjarðabyggðar, KFF og KSÍ vegna vallarmála við Eskifjarðarvöll, en þar kemur fram að KSÍ er tilbúið að veita KFF leikheimild á Eskifjarðarvelli eftir að farið verður í ákveðnar endurbætur. Þær endurbætur sem farið verður í eru eftirfarandi:<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />Fjarlægja grjótmulning umhverfis völlinn norðan og sunnan megin og leggja grasþökur á svæðið þannig að það nái a.m.k. 4 metra frá hliðar- og endalínu.Leggja grasþökur á svæðið að inngönguhliði leikmanna og yfir allt tækni svæðið við varamannaskýlið.Girða af öryggissvæðið umhverfis völlinn í samræmi við reglugerð.Uppsetningu á Vallarklukku en KFF er með söfnun fyrir henni.Til þessara framkvæmda fær Fjarðabyggð/KFF styrk sem nemur 2,5 milljónum í ár. Mannvirkjanefnd fagnar því að keppnisleyfi fyrir Eskifjarðarvöll verði gefið út fyrir sumarið.