Stúkuframkvæmd við Eskifjarðavöll - Leyfiskerfi
Mál 1003091 Fyrst á dagskrá 22. mars 2010, síðast 19. maí 2010. 7 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Mannvirkjanefnd.
Í hnotskurn
Málið snýst um þær framkvæmdir sem KSÍ krefst til að Knattspyrnufélag Fjarðabyggðar (KFF) fái að leika á Eskifjarðarvelli, meðal annars byggingu stúku13. Á síðasta fundi um málið kom fram að KSÍ væri tilbúið að veita KFF leikheimild á vellinum eftir tilteknar endurbætur og að 2,5 milljóna króna styrkur fengist til þeirra á árinu7.
Staðan
KSÍ er tilbúið að veita KFF leikheimild á Eskifjarðarvelli fyrir sumarið þegar tilgreindum endurbótum er lokið, og mannvirkjanefnd lýsti því í bókun að hún fagnaði því7.
Gervigreind skrifaði þetta yfirlit upp úr fundargerðum og upptökum. Hver tala vísar í færslu í ferlinum hér fyrir neðan. Þar er heimildin sjálf. Svona er yfirlitið unnið.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2010
Mannvirkjanefnd, fundur 31 liður 3
Lagður var fram tölvupóstur frá framkvæmdastjóra KSÍ um að stúkuframkvæmdum yrði ekki lokið 2012 samkvæmt samþykktri áætlun, og nefndin lagði til að KFF sækti um styrk í mannvirkjasjóð KSÍ til stúku og aðstöðuhúss
Endursögn gervigreindar
Lagður fram tölvupóstur frá Þórir Hákonarsyni framkvæmdarstjóra KSÍ vegna vallarmála Eskifirði. Nú liggur fyrir að stúkuframkvæmdir við Eskifjarðarvöll verði ekki lokið 2012 samkvæmt samþykktri áætlun. Mannvirkjanefnd fór yfir málið og leggur til að KFF sæki um styrk í mannvirkjasjóð KSÍ til stúkuframkvæmda og uppsetningu á aðstöðuhúsi. Komi jákvæð viðbrögð frá KSÍ mun mannvirkjanefnd taka 3. ára áætlun til endurskoðunar.
-
Bæjarráð, fundur 191 liður 1
Bæjarráð fól mannvirkjastjóra að ræða við KSÍ um notkun Eskifjarðarvallar fram til 2012 og um að Fjarðabyggðarhöllin yrði heimavöllur KFF frá 2012 þar til nauðsynlegum framkvæmdum við völlinn væri lokið
Endursögn gervigreindar
Mannvirkjastjóri sat þennan lið fundarins. Framlagðir tölvupóstar framkvæmdastjóra KSÍ og mannvirkjastjóra er varða leyfisumsókn Fjarðabyggðar vegna Eskifjarðarvallar. Mannvirkjanefnd fór yfir málið á fundi 22.mars og lagði til að Knattspyrnufélag Fjarðabyggðar myndi sækja um styrk í mannvirkjasjóð KSÍ til stúkuframkvæmda og uppsetningu á aðstöðuhúsi. Komi jákvæð viðbrögð frá KSÍ mun mannvirkjanefnd taka þriggja ára áætlun til endurskoðunar. Bæjarráð felur mannvirkjastjóra að ræða við KSÍ um notkun Eskifjarðarvallar fram til ársins 2012 og að Fjarðabyggðarhöllin verði heimavöllur KFF frá 2012 og þar til að nauðsynlegum mannvirkjaframkvæmdum við Eskifjarðarvöll er lokið. <?xml:namespace prefix = o />
-
Mannvirkjanefnd, fundur 32 liður 5
Lögð voru fram gögn frá KSÍ um nauðsynlegar framkvæmdir og vilyrði um 5 milljóna króna styrk, og nefndin lagði til að framkvæmdin yrði sett inn í þriggja ára áætlun svo að stúka fyrir 300 manns yrði tilbúin fyrir keppnistímabilið 2012
Endursögn gervigreindar
Lagt fram bréf frá KSÍ, dagsett 13. apríl síðastlin vegna Eskifjarðarvallar, þar sem koma fram þær framkvæmdir sem nauðsynlegt er að fara í til að Eskifjarðarvöllur standist þær kröfur sem gerðar eru til keppnisvalla í fyrstu deild á Íslandi. Fyrir liggur að KFF er ekki með keppnisleyfi fyrir árið 2010 á Eskifjarðarvelli þar sem að Fjarðabyggðarhöllin uppfyllir öll skilyrði sem KSÍ gerir til liða í næst efstudeild á Íslandi. Einnig lagt fram bréf mannvirkjastjóra til KSÍ með kostnaðaráætlun fyrir stúkubyggingu á Eskifjarðarvelli. Þar að auki lagður fram tölvupóstur frá KSÍ frá 14. apríl, en þar kemur fram að KSÍ er tilbúið að veita 5. milljónum úr mannvirkjasjóði til uppbyggingar á Eskifjarðarvelli 2,5. milljónir í ár og 2,5 milljónir árið 2012, sem væri þá háð framkvæmdarhraða á Eskifjarðarvelli. Mannvirkjanefnd leggur til að við endurskoðun 3. ára áætlun verði þessi framkvæmd sett þar inn, þannig að stúka fyrir 300 manns verði klár fyrir keppnistímabilið 2012.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
-
Bæjarráð, fundur 194 liður 4
Bréf framkvæmdastjóra KSÍ um skilyrði fyrir leikjum á Eskifjarðarvelli í 1. deild karla var lagt fram til kynningar og mannvirkjastjóri gerði grein fyrir afgreiðslu mannvirkjanefndar
Endursögn gervigreindar
Lagt fram til kynningar bréf framkvæmdastjóra KSÍ frá 13.apríl þar sem koma fram skilyrði þess að leikið verði á Eskifjarðarvelli í 1.deild karla í sumar. Mannvirkjastjóri gerði grein fyrir afgreiðslu mannvirkjanefndar á erindinu.
-
Bæjarstjórn, fundur 70 liður 3.4
Fundargerðin „Bæjarráð - 194“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 70 liður 7.5
Fundargerðin „Mannvirkjanefnd - 32“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Mannvirkjanefnd, fundur 33 liður 6
Lögð voru fram samskipti við KFF og KSÍ um endurbætur á grasi, öryggissvæði og vallarklukku sem skilyrði leikheimildar, með 2,5 milljóna króna styrk á árinu
Endursögn gervigreindar
Lögð fram samskipti milli Fjarðabyggðar, KFF og KSÍ vegna vallarmála við Eskifjarðarvöll, en þar kemur fram að KSÍ er tilbúið að veita KFF leikheimild á Eskifjarðarvelli eftir að farið verður í ákveðnar endurbætur. Þær endurbætur sem farið verður í eru eftirfarandi:<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />Fjarlægja grjótmulning umhverfis völlinn norðan og sunnan megin og leggja grasþökur á svæðið þannig að það nái a.m.k. 4 metra frá hliðar- og endalínu.Leggja grasþökur á svæðið að inngönguhliði leikmanna og yfir allt tækni svæðið við varamannaskýlið.Girða af öryggissvæðið umhverfis völlinn í samræmi við reglugerð.Uppsetningu á Vallarklukku en KFF er með söfnun fyrir henni.Til þessara framkvæmda fær Fjarðabyggð/KFF styrk sem nemur 2,5 milljónum í ár. Mannvirkjanefnd fagnar því að keppnisleyfi fyrir Eskifjarðarvöll verði gefið út fyrir sumarið.