Bæjarráð, fundur 194
20. apríl 2010, kl. 09:00 til 11:00, í Molanum. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 70 liður 3
Staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Ársreikningur Fjarðabyggðar 2009
Mál 1004016 Allur ferill málsins
Fjármálastjóri og Magnús Jónsson endurskoðandi frá KPMG sátu þennan lið fundarins. Farið var yfir ársreikning 2009.
-
2. Starfsemi bæjarskrifstofu og þjónustugátta sumarið 2010
Mál 1002018 Allur ferill málsins
Minnisblað forstöðumanns stjórnsýslu frá 15.apríl lagt fram. Bæjarráð samþykkir tillögur í minnisblaði.
-
3. Ársreikningur 2008 - Athugun Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga á ársreikningi 2008
Mál 1004038 Allur ferill málsins
Lagt fram bréf Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga frá 13.apríl þar sem kemur fram að vegna athugunar á fjármálum Fjarðabyggðar muni eftirlitsnefndin ekki aðhafast frekar að svo stöddu. Bréfi vísað til fjármálasviðs.
-
4. Stúkuframkvæmd við Eskifjarðavöll - Leyfiskerfi
Mál 1003091 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar bréf framkvæmdastjóra KSÍ frá 13.apríl þar sem koma fram skilyrði þess að leikið verði á Eskifjarðarvelli í 1.deild karla í sumar. Mannvirkjastjóri gerði grein fyrir afgreiðslu mannvirkjanefndar á erindinu.
-
5. Rannsókn á gasmyndun á urðunarstað Fjarðabyggðar í Þernunesi
Mál 1003112 Allur ferill málsins
Umsögn umhverfisfulltrúa frá 19.apríl. Kostnaður Fjarðabyggðar vegna rannsóknar á gasmyndun á urðunarstað í Þernunesi er áætlaður um 1 milljón. Bæjarráð samþykkir þáttöku í verkefninu og felur umhverfisfulltrúa að gera grein fyrir hvort kostnaður rúmist innan fjárheimilda ársins.
-
6. Umsókn um lóð fyrir Hús-andanna
Mál 0908085 Allur ferill málsins
Ósk um lóð undir kofa fyrir andaræktun. Umsögn byggingarfulltrúa frá 20.apríl. Bæjarráð fagnar framtakinu og samþykkir að leyfisgjöld verði ekki innheimt.
-
7. Aðalfundur Menningarráðs Austurlands - tilnefning fulltrúa
Mál 1004035 Allur ferill málsins
Tilnefningu vísað til MÍF.
-
8. Útgáfa á Fjarðabyggðarfréttum
Mál 0905004 Allur ferill málsins
Farið yfir tillögur að efni í 2.tbl. Fjarðabyggðarfrétta.
-
9. Hafnarstjórn - 69
Fundargerð lögð fram.
-
10. Umhverfis- og skipulagsnefnd - 42
Fundargerð lögð fram.