Bæjarráð, fundur 195
27. apríl 2010, kl. 09:00 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 70 liður 4
Staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Ársreikningur Fjarðabyggðar 2009
Mál 1004016 Allur ferill málsins
Þennan lið fundarins sátu fjármálastjóri og Magnús Jónsson endurskoðandi frá KPMG. Magnús fór yfir endurskoðunarskýrslu með ársreikningi 2009 og Ársreikning Fjarðabyggðar 2009 auk þess sem fjármálastjóri fór yfir frávikagreiningu.
-
2. Almenningssamgöngur - Kynning á Evrópusambandsverkefni
Mál 1004103 Allur ferill málsins
Þennan lið fundarins sátu umhverfisstjóri og starfsmaður Þróunarfélags Austurlands Ingigerður Erlingsdóttir verkefnastjóri. Ingigerður kynnti Evrópusambandsverkefnið "Almenningssamgöngur í dreifbýli" Verkefninu er skipt í fimm verkáfanga og er öðrum áfanga að ljúka. Næsti áfangi er skilgreining nýrra lausna/eða endurbætur á núverandi þjónustu.
-
3. Atvinnuleysi á Austurlandi í mars 2010
Mál 1004098 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar.
-
4. Mannvirkjanefnd - 32
Fundargerð lögð fram.