Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 196

4. maí 2010, kl. 09:00 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 71 liður 2

    Til máls tóku Jens Garðar Helgason, Valdimar O. Hermannsson, Helga Jónsdóttir, Íris Valsdóttir og Þorbergur Hauksson.Fundargerð samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Sorpurðun - Samstarf við Fljótsdalshérað, Seyðisfjarðarkaupstað og Fljótsdalshrepp

    Mál 0905099 Allur ferill málsins

    Mannvirkjastjóri sat þennan lið fundarins. Greinargerð starfshóps um samstarf í meðhöndlun úrgangs á miðausturlandi lögð fram til kynningar. Mannvirkjastjóri tæpti á helstu atriðum í greinargerðinni. Bæjarráð óskar eftir minnisblaði frá mannvirkjastjóra og umhverfisstjóra með tillögum til að fylgja eftir tillögum í greinargerð starfshópsins.

  2. 2. Breiðablik - vegna greiningarvinnu á leiguíbúðum aldraða.

    Mál 0905079 Allur ferill málsins

    Vísað frá öldrunarþjónustunefnd. Greinargerð félagsmálafulltrúa frá 23.mars lögð fram til kynningar.

  3. 3. Ósk um fjögurra vikna sumarlokun leikskólans Kærabæjar

    Mál 1004115 Allur ferill málsins

    Vísað frá fræðslunefnd. Minnisblað fræðslustjóra frá 26.apríl. Bæjarráð samþykkir að leikskólinn Kæribær verði lokaður í fjórar vikur frá 12.júlí til 9.ágúst.

  4. 4. Fjölmiðlaumfjöllun vegna kosninga - Tilboð í vöktun

    Mál 1004141 Allur ferill málsins

    Bæjarráð samþykkir að nýta þjónustu Creditinfo fram að kosningum.

  5. 5. Aðalfundur Þróunarfélags Austurlands og Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands

    Mál 1005001 Allur ferill málsins

    Skýrslur stjórna Þróunarfélags Austurlands og Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands frá aðalfundum 29.apríl lagðar fram til kynningar.

  6. 6. Fundagerð yfirkjörstjórnar 29.apríl 2010

    Mál 1005002 Allur ferill málsins

    Bæjarráð samþykkir tillögu yfirkjörstjórnar um opnunartíma kjörstaða í Fjarðabyggð og staðsetningu þeirra sem hér segir laugardaginn 29.maí.Eskifjörður - Kirkju- og menningarmiðstöðin. Frá kl. 09:00 - 22:00.Fáskrúðsfjörður - Grunnskólinn. Frá kl. 09:00 - 22:00.Mjóifjörður - Sólbrekka. Frá kl. 09:00 - 14:00.Norðfjörður - Nesskóli. Frá kl. 09:00 - 22:00.Reyðarfjörður - Safnarheimili. Frá kl. 09:00 - 22:00.Stöðvarfjörður - Grunnskóli. Frá kl.09:00 - 22:00.

  7. 7. Lög um fjárhagsskil sveitarfélaga.

    Mál 1004149 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar.

  8. 8. Veiðifélag Dalsár - Aðalfundaboð og fundagerð 2010

    Mál 1004066 Allur ferill málsins

    Fundargerð aðalfundar frá 28.apríl lögð fram til kynningar.

  9. 9. Afleiðu- og gjaldeyrissamningar við Landsbankann

    Mál 1004011 Allur ferill málsins

    Minnisblað fjármálastjóra frá 3.maí um uppgjör við skilanefnd Landsbanka Íslands.  Bæjarráð samþykkir tillögu í minnisblaði og veitir fjármálastjóra heimild til að ganga frá málinu á grundvelli minnisblaðs.

  10. 10. Umsóknir um byggðakvóta

    Mál 1005014 Allur ferill málsins

    Lagðar fram til kynningar auglýsingar Fiskistofu um úthlutun byggðakvóta.

  11. 11. Framleiga á gamla húsnæði Knellunnar að Strandgötu 44

    Mál 1004154 Allur ferill málsins

    Díana vék af fundi undir þessum lið. Bréf Díönu Mjallar Sveinsdóttur frá 29.apríl þar sem óskað er eftir leigu á gamla húsnæði Knellunnar á Eskifirði.  Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur mannvirkjasviði að undirbúa samning sem lagður verði fyrir næsta fund bæjarráðs.

  12. 12. Menningar-, íþrótta- og ferðamálanefnd - 35

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð lögð fram.

  13. 13. Fræðslunefnd - 29

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð lögð fram.