Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFræðslunefnd

Fræðslunefnd, fundur 29

24. ágúst 2016, kl. 16:00 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Pálína Margeirsdóttir, formaður
  • Aðalheiður Vilbergsdóttir, varamaður
  • Margrét Perla Kolka Leifsdóttir, varamaður
  • Kjartan Glúmur Kjartansson, varamaður
  • Þóroddur Helgason, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 196 liður 13

    Fundargerð lögð fram.

  • Bæjarstjórn, fundur 71 liður 3

    Enginn tók til máls.Fundargerð samþykkt með 9 atkvæðum.

  • Bæjarráð, fundur 486 liður 16

    Fundargerð fræðslunefndar nr. 29 lögð fram til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 205 liður 4

    Til máls tók Pálína Margeirsdóttir.

    Fundargerð fræðslunefndar, nr.29 frá 24.ágúst 2016, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Hvatningarbréf um að leggja kostnaðarþáttöku foreldra af eða halda henni í lámarki

    Mál 1608032 Allur ferill málsins

    Borist hefur hvatningarbréf frá Velferðarvaktinni dagsett 9. ágúst 2016, þar sem sveitarstjórnir á landinu eru hvattar til að leggja kostnaðarþátttöku foreldra vegna ritfangakaupa barna af eða halda henni í lágmarki. Fræðslustjóri greindi frá því að grunnskólarnir í Fjarðabyggð önnuðust innkaup fyrir yngri nemendur skólanna og hefðu þannig náð niður kostnaði fyrir foreldra. Hann taldi kostnað sveitarfélagsins við að leggja kostnaðarþátttöku foreldra af geta verið á bilinu 3-5 milljónir eftir því hversu viðamikil innkaupin eru. Málinu vísað til frekari umræðu um fjárhagsáætlun 2017.

  2. 2. Styrktarsjóður EBÍ 2016

    Mál 1602136 Allur ferill málsins

    Borist hefur bréf frá styrktarsjóði EBÍ þar sem fram kemur að Fjarðabyggð hljóti styrk upp á 300.000 kr. til að vinna áfram að skólabúðaverkefni á Stöðvarfirði. Fræðslunefnd fagnar styrkveitingunni og vonast til að hún nýtist nemendum sem best.

  3. 3. Farkennari í dönsku í Fjarðabyggð

    Mál 1608080 Allur ferill málsins

    Fræðslustjóri gerði grein fyrir komu farkennara í dönsku til Fjarðabyggðar. Farkennarinn mun dvelja í Fjarðabyggð á haustönn og ferðast á milli grunnskóla þar sem hann mun styðja við dönskukennslu. Fræðslunefnd lýsir ánægju með komu farkennarans og óskar honum farsældar í starfi.

  4. 4. Bygging leikskóla á Neseyri

    Mál 1402081 Allur ferill málsins

    Farið var yfir minnisblað fræðslustjóra um byggingu leikskólans á Neseyri. Í minnisblaðinu kemur fram að skólinn hafi tekið við fyrstu nemendum fimmtudaginn 18. ágúst síðastliðinn í blíðskaparveðri. Nemendur undu sér vel í glæsilegu húsnæði skólans og úti á leikskólalóðinni. Fram kom að framkvæmdum á skólalóðinni væri að ljúka og ákveðið hefði verið að vígja nýja leikskólann 17. september. Í minnisblaðinu kemur fram tillaga nefndar sem valdi úr tillögum íbúa um nafn á skólanum. Nefndin leggur til að skólinn verði nefndur Eyrarvellir sem er bæði með vísun í gamla skólann Sólvelli og Neseyrina þar sem skólinn stendur. Fræðslunefnd samþykkir tillögu nefndarinnar og óskar íbúum Fjarðabyggðar til hamingju með glæsilega byggingu og skólalóð og vonast eftir að íbúar nýti sér tækifærið 17. september til að heimsækja skólann og skoða aðstæður.

  5. 5. Staða framkvæmda í Tónskóla Neskaupstaðar og Nesskóla og elsta hluta húsnæðis Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar

    Mál 1608077 Allur ferill málsins

    Fræðslustjóri greindi frá framkvæmdum í húsnæði Tónskóla Neskaupstaðar, í myndmenntarstofu Nesskóla og elsta hluta Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar. Að sögn starfsmanna framkvæmdasviðs sveitarfélagsins eru framkvæmdir á áætlun og unnið er í nánu samstarfi við færustu sérfræðinga landsins svo vel takist til við endurbyggingu.

  6. 6. Viðmiðunarreglur um úthlutun stöðugilda til leikskóla í Fjarðabyggð

    Mál 1603038 Allur ferill málsins

    Farið var yfir drög að viðmiðunarreglum um úthlutun stöðugilda til leikskóla í Fjarðabyggð. Fræðslunefnd felur fræðslustjóra að kanna hvaða áhrif reglurnar hefðu á úthlutun 2017 miðað við nemendafjölda í leikskólunum og vistunartíma.

  7. 7. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2017 - fræðslunefnd

    Mál 1605157 Allur ferill málsins

    Framlögð tillaga að úthlutun ramma við fjárhagsáætlunargerð í samræmi við reglur um fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2017. Farið var yfir rekstrarstöðuna fyrir sjö fyrstu mánuði ársins og drög að starfsáætlun í fræðslumálum ásamt samþykktri fjölskyldustefnu. Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlun 2017.