Bæjarráð, fundur 486
29. ágúst 2016, kl. 08:30 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Esther Ösp Gunnarsdóttir, varamaður
- Valdimar O Hermannsson, varaformaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 205 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umræðu og afgreiðslu saman.
Til máls tóku Jón Björn Hákonarson og Valdimar O. Hermannsson.
Fundargerð bæjarráðs, nr. 486 frá 29. ágúst 2016, samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2017
Mál 1605024 Allur ferill málsins
Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.
Drög að úthlutun fjárhagsramma 2017 til nefnda fram lagður og kynntur.
Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlunargerð 2017.
-
2. Skammtímafjármögnun 2016
Mál 1608109 Allur ferill málsins
Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.
Bæjarráð samþykkti á fundi sínum 15.8. að leita verði eftir skammtímafjármögnun vegna endurgreiðslu á erlendum lánum hjá Lánasjóði sveitarfélaga til næstu 7 mánaða að upphæð 708 milljónir króna.
Bæjarráð samþykkir lántökuna fyrir sitt leyti og vísar henni bæjarstjórnar. Jafnframt er fjármálastjóra falið að semja viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2016 vegna breytinga á fjármögnun.
-
3. Reglur Fjarðabyggðar um úthlutun tíma í íþróttamannvirkjum til íþróttafélaga og almennings
Mál 1602033 Allur ferill málsins
Íþrótta- og tómstundanefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, reglur um úthlutun tíma í íþróttamannvirkjum til íþróttafélaga og almennings. Reglurnar voru unnar í samráði við íþrótta- og tómstundanefnd, formenn íþróttafélaga í Fjarðabyggð og forstöðumenn íþróttamiðstöðva. Einnig lagt fram minnisblað íþrótta- og tómstundafulltrúa um fyrirkomulag "öldungablaks".
Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
4. Rekstur hjúkrunarheimilisins Hulduhlíðar
Mál 1608073 Allur ferill málsins
Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.
Vísað frá félagsmálanefnd. Minnisblað framkvæmdastjóra hjúkrunarheimila er varðar rekstur Hulduhlíðar á Eskifirði.
Bæjarstjóra og fjármálastjóra falið að vinna að málinu og leggja það fyrir félagsmálanefnd og bæjarráð að nýju.
-
5. Uppbygging ljósleiðaraneta í Fjarðabyggð og ríkisaðstoðarreglur EES
Mál 1411143 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað um hönnun ljósleiðarkerfis í dreifbýli Fjarðabyggðar ásamt tengdum gögnum. Gögn eru trúnaðarmál.
Vísað til áframhaldandi vinnu.
-
6. Fyrirkomulag fjallskila og gangnaboð, 2016
Mál 1608074 Allur ferill málsins
Framlagt gangnaboð landbúnaðarnefndar sem tillaga að fjallskilum í Fjarðabyggð.
Bæjarráð staðfestir gangnaboð.
Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
-
7. Sérstakir styrkir Orkusjóðs árið 2016
Mál 1608110 Allur ferill málsins
Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.
Framlögð auglýsing Orkusjóðs um sérstaka styrki á árinu 2016 vegna verkefna sem stuðla að lækkun kostnaðar vegna raf- og olíukyndingar með það að markmiði að leiða til orkusparnaðar.
Vísað til fjármálastjóra, sviðsstjóra framkvæmda-, umhverfis- og veitusviðs og eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
-
8. Áhrif nýrrar húsnæðislöggjafar gagnvart sveitarfélögum
Mál 1608100 Allur ferill málsins
Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.
Samantekt Sambandsins vegna áhrifa nýrrar húsnæðislöggjafar gagnvart sveitarfélögum.
Vísað til kynningar í félagsmálanefnd og eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Vísað til vinnslu hjá fjármálastjóra, félagsmálastjóra og skipulags- og byggingarfulltrúa.
-
9. Almenningssamgöngur 2016
Mál 1602039 Allur ferill málsins
Samningar um akstur íþróttaiðkenda í Fjarðabyggðarhöllina, um almenningsakstur milli Norðfjarðar og Egilsstaða, um almenningssamgöngur á Austurlandi og um akstur framhaldsskólanema í Fjarðabyggð, lagðir fram til staðfestingar í bæjarráði. Samningarnir voru samþykktir í eigna- skipulags- og umhverfisnefnd 4.júlí 2017.
Bæjarráð samþykkir samninga og felur bæjarstjóra undirritun þeirra.
-
10. Byggðaráðstefnan 2016 á Breiðdalsvík 14.-15. sept. nk.
Mál 1608079 Allur ferill málsins
Byggðaráðstefna Byggðastofnunar í samstarfi við Austurbrú og Samband sveitarfélaga á Austurlandi, verður haldin 14. - 15. september nk. á Breiðdalsvík.
Bæjarráð hvetur bæjarfulltrúa til að mæta á ráðstefnuna.
-
11. Byggðaáætlun 2017 - 2023
Mál 1604003 Allur ferill málsins
Unnið er að gerð nýrrar byggðaáætlunar sem á að gilda 2017 til 2023. Haldinn verður fundur með fulltrúum Byggðastofnunar miðvikudaginn 5.október nk. kl. 16:00 - 18:45 í Valaskjálf.
Bæjarráð hvetur bæjarfulltrúa til að mæta á ráðstefnuna.
-
12. Umsókn um lán frá Ofanflóðasjóði 2016
Mál 1604136 Allur ferill málsins
Lánveiting frá Ofanflóðasjóði vegna framkvæmda við ofanflóðavarnir, á árinu 2016 í Fjarðabyggð að upphæð 26, 3 milljónir kr.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti lántökuna og vísar lántöku til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
13. Fundargerðir stjórnar SSA 2016
Mál 1601213 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar 10. fundargerð stjórnar Sambands sveitarfélaga á Austurlandi sem haldinn var 18. og 19. ágúst s.l.
-
14. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 151
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 151 lögð fram til kynningar.
-
15. Hafnarstjórn - 165
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 165 lögð fram til kynningar.
-
16. Fræðslunefnd - 29
Fundargerð fræðslunefndar nr. 29 lögð fram til kynningar.
-
17. Íþrótta- og tómstundanefnd - 24
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar nr. 24 lögð fram til kynningar.
-
18. Fundargerðir félagsmálanefndar 2016
Mál 1601210 Allur ferill málsins
Fundargerð félagsmálanefndar nr. 85 lögð fram til kynningar.