Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2016

Skammtímafjármögnun 2016

Mál 1608109 Fyrst á dagskrá 29. ágúst 2016, síðast 1. september 2016. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2016

    Bæjarráð, fundur 486 liður 2

    Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.

    Bæjarráð samþykkti á fundi sínum 15.8. að leita verði eftir skammtímafjármögnun vegna endurgreiðslu á erlendum lánum hjá Lánasjóði sveitarfélaga til næstu 7 mánaða að upphæð 708 milljónir króna.

    Bæjarráð samþykkir lántökuna fyrir sitt leyti og vísar henni bæjarstjórnar. Jafnframt er fjármálastjóra falið að semja viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2016 vegna breytinga á fjármögnun.

  2. Bæjarstjórn, fundur 205 liður 8

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi máli úr hlaði. Bæjarráð samþykkti á fundi 15. ágúst sl. að leitað verði eftir skammtímafjármögnun vegna endurgreiðslu á erlendum lánum hjá Lánasjóði sveitarfélaga til næstu fimm mánaða að upphæð 708 milljónir króna og vísaði á fundi 29.ágúst ákvörðun um lántöku til bæjarstjórnar. Jafnframt var fjármálastjóra falið að semja viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2016 vegna breytinga á fjármögnun.

    Til máls tók Valdimar O. Hermannsson.

    Lesa alla bókunina (116 orð til viðbótar)

    Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkir með 9 atkvæðum að taka skammtímalán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð allt að 650.000.000 kr. til loka janúar 2017, á breytilegum vöxtum, í samræmi við lánstilboð sem liggur fyrir fundinum. Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2.mgr. 68.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Er lánið tekið til endurfjármögnunar á eldri lánum, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Jafnframt er Páli Björgvin Guðmundssyni, bæjarstjóra Fjarðabyggðar kt. 150870-4379, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Fjarðabyggðar, að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari.

  3. Bæjarstjórn, fundur 205 liður 2.2

    Fundargerðin „Bæjarráð - 486“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is