Bæjarráð, fundur 487
5. september 2016, kl. 08:30 til 11:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Valdimar O Hermannsson, varaformaður
Starfsmenn
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 206 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Valdimar O Hermannsson, Sævar Guðjónsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Elvar Jónsson.
Fundargerð bæjarráðs frá 5.september 2016, staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Árshlutareikningur Fjarðabyggðar 30.6. 2016 - TRÚNAÐARMÁL
Mál 1608095 Allur ferill málsins
Lagt fram milliuppgjör Fjarðabyggðar fyrir janúar - júní 2016 ásamt yfirliti um rekstur málaflokka. Lagt fram sem trúnaðarmál.
-
2. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2017
Mál 1605024 Allur ferill málsins
Framhald vinnu við fjárhagsáætlun 2017.
Framlögð tillaga bæjarstjóra að fjárhagsrömmum fjárhagsáætlunar ársins 2017 og farið yfir skiptingu fjármagns til málaflokka og sviða.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að skiptingu ramma
Bæjarstjóra falið að úthluta fjárhagsrömmum til fastanefnda með skýringum.
-
3. Umhverfismál á Fáskrúðsfirði
Mál 1608083 Allur ferill málsins
Framlagt erindi Steins Jónassonar og Gunnars Geirssonar er varðar umhverfismál á Fáskrúðsfirði.
Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
Sviðsstjóra framkvæmda-, umhverfis- og veitusviðs falið að svara erindinu í samráði við umhverfisstjóra.
-
4. Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2016
Mál 1608117 Allur ferill málsins
Tilnefning fulltrúa á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga 22. og 23. september nk.
Fulltrúar sveitarfélagsins verða Jón Björn Hákonarson, Valdimar O Hermannsson, Eydís Ásbjörnsdóttir ásamt bæjarstjóra og fjármálastjóra.
-
5. Erindi frá Ostrów Wielkiopolski Town og Commune Poland
Mál 1608129 Allur ferill málsins
Framlögð fyrirspurn frá Ostrow Wielkopolski, bæ í Póllandi, sem leitar að samstarfsaðila vegna verkefnis innan Bilateral Cooperation sjóðsins.
Bæjarritara falið að meta beiðnina og afgreiða.
-
6. Nefndaskipan Sjálfstæðisflokks 2014 - 2018
Mál 1406124 Allur ferill málsins
Sjálfstæðisflokkur tilnefnir Guðlaugu Dönu Andrésdóttur sem aðalmann í fræðslunefnd í stað Magna Þórs Harðarsonar sem hefur sagt sig frá störfum í nefndinni.
-
7. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 152
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 29. ágúst s.l. lögð fram til kynningar.