Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 152

29. ágúst 2016, kl. 16:00 til 18:00, 'i vinnuherbergi nýja leikskólans á Neseyri í Neskaupstað. Fundargerð ritaði Marinó Stefánsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Ragnar Sigurðsson, varaformaður
  • Svanhvít Yngvadóttir, aðalmaður
  • Einar Már Sigurðarson, aðalmaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 487 liður 7

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 29. ágúst s.l. lögð fram til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 206 liður 3

    Fundargerðir eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Sævar Guðjónsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Elvar Jónsson, Ragnar Sigurðsson.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 29.ágúst 2016, staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Starfshópur um göngu- og hjólreiðastíga

    Mál 1510014 Allur ferill málsins

    Nefndin ákveður að leita til AKS teiknistofu um að teikna upp kort af göngu og hjólastígum. Sviðstjóra framkvæmda- umhverfis og þjónustusviðs falið að vinna málið áfram, auk þess að meta ástand göngu - og hjólastíga. Nefndin óskar eftir drögum af kortum fyrir fund þann 19. september. Nefndin felur sviðstjóra að ræða við Vegagerðina um að auka öryggi hjólreiðamanna um Fárskrúðsfjarðar- og nýju Norðfjarðargöng.

  2. 2. Áhrif nýrrar húsnæðislöggjafar gagnvart sveitarfélögum

    Mál 1608100 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarráði. Samantekt Sambandsins vegna áhrifa nýrrar húsnæðislöggjafar gagnvart sveitarfélögum. Lagt fram til kynningar.

  3. 3. Sérstakir styrkir Orkusjóðs árið 2016

    Mál 1608110 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarráði. Framlögð auglýsing Orkusjóðs um sérstaka styrki á árinu 2016 vegna verkefna sem stuðla að lækkun kostnaðar vegna raf- og olíukyndingar með það að markmiði að leiða til orkusparnaðar. Nefndinni líst vel á að sótt verði um styrki á svið orkumála.

  4. 4. Fyrirkomulag fjallskila og gangnaboð, 2016

    Mál 1608074 Allur ferill málsins

    Bæjarráð samþykkti fyrir sitt leyti gangnaboð vegna fjallskila í Fjarðabyggð árið 2016 á fundi sínum 29. ágúst. Nefndin samþykkir fyrirkomulag fjallskila og gangnaboð.