NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 153
5. september 2016, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Marinó Stefánsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Svanhvít Yngvadóttir, aðalmaður
- Einar Már Sigurðarson, aðalmaður
- Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
- Ragnar Sigurðsson, varaformaður
Starfsmenn
- Valur Sveinsson, embættismaður
- Marinó Stefánsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 488 liður 30
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 5. september 2016, lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 206 liður 4
Fundargerðir eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 5.september 2016, staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Kortlagning beitarsvæða í Fjarðabyggð
Mál 1502072 Allur ferill málsins
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir drög að reglum og samningi um beitar- og slægjulönd í Fjarðabyggð. Nefndin vísar málinu áfram til bæjarráðs.
-
2. Rusl á lóðum einstakling, fyrirtækja og sveitarfélags 2016
Mál 1605159 Allur ferill málsins
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir verkferlið eins og lagt er fram í minnisblaði.
-
3. Umhverfismál á Fáskrúðsfirði
Mál 1608083 Allur ferill málsins
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd fór yfir efni bréfsins og fól sviðstjóra og umhverfisstjóra að svara erindinu.
-
4. Dagur íslenskrar náttúru 16. september 2016
Mál 1608121 Allur ferill málsins
Þema Dags íslenskrar náttúru 2016 eru vættir sem búa í og vaka yfir náttúrunni okkar.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd felur umhverfisstjóra að skoða hvað gera skuli í Fjarðabyggð á degi íslenskrar náttúru 2016 í samstarfi við skóla, félagasamtök og stofnanir.
-
5. 674. mál til umsagnar frumvarp til laga um Umhverfisstofnun (heildarlög)
Mál 1608101 Allur ferill málsins
674. mál til umsagnar frumvarp til laga um Umhverfisstofnun lagt fram til kynningar.
-
6. 647.mál til umsagnar tillögu til þingsályktunar um náttúrustofur
Mál 1609008 Allur ferill málsins
Alþingi ályktar að fela umhverfis- og auðlindaráðherra að koma á fót starfshópi til að meta
reynsluna af starfi náttúrustofa síðustu 20 árin og meta hvort hagkvæmt sé að náttúrustofur taki formlega að sér fleiri svæðisbundin verkefni en þær hafa nú með höndum. Þá verði hópnum falið að móta leiðir til að styrkja samstarf náttúrustofa og stofnana ríkisins í þeim
tilgangi að nýta fjármagn til þekkingaröflunar og vöktunar á náttúru landsins sem best.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd lýst vel á ályktunina og vonast til að hún verði samþykkt.
-
7. 730 Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 breyting - stækkun akstursíþróttasvæðis og nýs skotsvæðis vestan Bjarga á Reyðarfirði
Mál 1403113 Allur ferill málsins
Tvær athugasemdir bárust og eru lagðar fram til kynningar. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að fela formanni nefndarinnar og bæjarstjóra að funda með forsvarsmönnum Skógræktarfélags Reyðarfjarðar fyrir næsta fund nefndarinnar.
-
8. 730 - Deiliskipulag aksturs- og skotíþróttasvæða vestan Bjarga
Mál 1109100 Allur ferill málsins
Tvær athugasemdir bárust og eru lagðar fram til kynningar. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að fela formanni nefndarinnar og bæjarstjóra að funda með forsvarsmönnum Skógræktarfélags Reyðarfjarðar fyrir næsta fund nefndarinnar.
-
9. 735 - Deiliskipulag Hlíðarenda
Mál 1502042 Allur ferill málsins
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti að tillaga að deiliskipulagi Hlíðarenda verði auglýst að nýju og að í skipulaginu verði gert ráð fyrir lóðum fyrir Gömlu Búð og Jensenshús austan við Strandgötu 98b. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarstjórnar.
-
10. 735 Strandgata 12 - lóðamál
Mál 1301195 Allur ferill málsins
Lagt fram bréf Kára Pálssonar fh. SA ehf, dagsett 29. ágúst 2016, vegna lóðarmála Strandgötu 12 á Eskifirði.
Eftir útsendingu síðasta bréfs til lóðarhafa, í kjölfar ákvörðunar nefndarinnar, sjá 150. fund nefndarinnar þann 11. ágúst sl., þá hefur fyrirsvarsmaður SA ehf haft samband og óskað samninga við sveitarfélagið, en ella skjóta ákvörðun nefndarinnar til úrskurðarnefndar.
Fyrirsvarsmaður SA ehf kveðst ekki hafa fengið bréf sveitarfélagsins í málinu frá 1. júní sl., en staðfesti að það hefði borist skrifstofu hans. Þá kvað hann annir hafa valdið því að ekki væri komið að framkvæmdum á lóðinni.
Þar sem ákvörðun sveitarfélagsins í málinu var tekin vegna skorts á viðbrögðum lóðarhafa við bréfi sveitarfélagsins 1. júní sl., þá leggur nefndin til að lóðarhafa verði veittur lokafrestur til
31. desember 2016 til að hefja framkvæmdir á lóðinni, gegn því að samkomulag náist við lóðarhafa um réttarstöðu málsins, fari svo að framkvæmdir hefjist ekki á henni á umsömdum tíma. Í því samkomulagi verði fjallað um þau atriði sem fram komu í bréfi sveitarfélagsins sem sent var í framhaldi af 150. fundi nefndarinnar og er byggingafulltrúa falið að ganga frá slíku samkomulagi með fyrirvara um samþykki bæjarstjórnar eða að því fengnu.
-
11. Kynningarbréf frá Íslenska byggingavettvanginum
Mál 1608123 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar kynningarbréf Íslenska byggingarvettvangsins. Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að skoða málið frekar.
-
12. Tilkynning um fyrirhugaða 4.000 tonna laxeldisstöð Laxar fiskeldis ehf. í sjókvíum í Fáskrúðfirði
Mál 1201079 Allur ferill málsins
Beiðni Skipulagsstofnunar um umsögn vegna matsáætlunar fyrir fyrirhugaða 4.000 tonna ársframleiðslu á laxi í eldisstöð Laxa fiskeldis ehf. í sjókvíum í Fáskrúðfirði.
Fyrir fundinum liggur umsögn sem bæjarráð hefur samþykkt. Lögð fram til kynningar.
-
13. Landbúnaðarnefnd - 16
Samþykkt
-
14. Afgreiðslur byggingafulltrúa - 75
Samþykkt
-
15. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2017 - eigna-,skipulags og umhverfisnefndar
Mál 1605156 Allur ferill málsins
Nefndin ræddi um fjárheimildir fyrir árið 2017 og fól sviðstjóra að útfæra hugmyndir nefndarinnar fyrir næsta fund.