730 - Deiliskipulag aksturs- og skotíþróttasvæða vestan Bjarga
Mál 1109100 Fyrst á dagskrá 10. apríl 2014, síðast 17. nóvember 2016. 14 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Í heiti málsins: Íþróttir og tómstundirSkipulag
Í hnotskurn
Málið snýst um deiliskipulag fyrir aksturs- og skotíþróttasvæði vestan Bjarga á Reyðarfirði1. Bæjarstjórn samþykkti deiliskipulagið 17. nóvember 2016 með 8 atkvæðum13.
Staðan
Bæjarstjórn hefur samþykkt deiliskipulagið og málsmeðferð verður í samræmi við 42. gr. skipulagslaga13.
Gervigreind skrifaði þetta yfirlit upp úr fundargerðum og upptökum. Hver tala vísar í færslu í ferlinum hér fyrir neðan. Þar er heimildin sjálf. Svona er yfirlitið unnið.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2014
Bæjarstjórn, fundur 153 liður 17
Bæjarstjórn samþykkti með 9 atkvæðum skipulags- og matslýsingu vegna fyrirhugaðs deiliskipulags svæðisins.
Endursögn gervigreindar
Forseti bæjarstjórnar fylgdi skipulags- og matslýsingu úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum framlagða skipulags- og matslýsing vegna fyrirhugaðs deiliskipulags aksturs- og skotíþróttasvæðis vestan Bjarga á Reyðarfirði.
-
2015
Bæjarstjórn, fundur 174 liður 6
Bæjarstjórn samþykkti með 9 atkvæðum að auglýsa tillögu að deiliskipulagi, sem sett var fram á uppdrætti, greinargerð og umhverfisskýrslu dagsettum 9. janúar 2015, að tillögu eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
Endursögn gervigreindar
Forseti bæjarstjórnar fylgdi deiliskipulagstillögunni úr hlaði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að tillaga að deiliskipulagi aksturs- og skotsvæðis vestan Bjarga á Reyðarfirði verði auglýst.
Til máls tóku: Kristín Gestsdóttir, Eiður Ragnarsson, Valdimar O Hermannsson,
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að auglýsa tillögu að deiliskipulagi aksturs- og skotsvæðis vestan Bjarga á Reyðarfirði.
Tillagan er sett fram á uppdrætti, greinargerð og umhverfisskýrslu dags. 9. janúar 2015. Tillagan verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga.
-
2016
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 141 liður 2
Nefndin ræddi almennan íbúafund um tillöguna sem haldinn var 30. mars 2016 og fól skipulags- og byggingarfulltrúa að skoða málið frekar og kynna það á næsta fundi.
Endursögn gervigreindar
Almennur íbúafundur þar sem tillaga að deiliskipulagi var kynnt var haldinn 30. mars síðastliðinn.
Tekin umræða um íbúafundinn. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur skipulags- og byggngarfulltrúa að skoða málið frekar og kynna á næsta fundi nefndarinnar.
-
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 142 liður 1
Nefndin ræddi mótvægisaðgerðir og vísaði áframhaldandi umræðu til næsta fundar.
Endursögn gervigreindar
Ræddar mótvægisaðgerðir. Áframhaldandi umræðu vísað til næsta fundar.
-
Bæjarstjórn, fundur 199 liður 6.2
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 141“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 199 liður 7.1
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 142“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 147 liður 3
Nefndin samþykkti fyrir sitt leyti að tillagan yrði auglýst að nýju, lagði til mótvægisaðgerðir í formi göngustíga og áningarstaða innan Búðarár og fól skipulags- og byggingarfulltrúa að kynna áformin fyrir Skógræktarfélagi Reyðarfjarðar fyrir auglýsingu.
Endursögn gervigreindar
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti að tillagan verði auglýst að nýju. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarstjórnar. Nefndin samþykkir jafnframt að gert verði ráð fyrir mótvægisaðgerðum vegna skipulagsins í starfshóp um göngu- og hjólreiðastíga. Mótvægisaðgerðir felist í tengingu göngustíga, göngustígagerðar og áningastaða innan Búðarár. Nefndin felur skipulags- og byggignarfulltrúa að kynna áformin fyrir Skógræktarfélagi Reyðarfjarðar áður en til auglýsingar kemur.
-
Bæjarstjórn, fundur 203 liður 9
Bæjarstjórn samþykkti með 9 atkvæðum að auglýsa deiliskipulagstillöguna að nýju og að gert yrði ráð fyrir mótvægisaðgerðunum í starfshópi um göngu- og hjólreiðastíga.
Endursögn gervigreindar
Forseti bæjarstjórnar fylgdi deiliskipulagi úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að auglýsa deiliskipulagstillögu að nýju. Gert verði ráð fyrir mótvægisaðgerðum vegna skipulagsins í starfshóp um göngu- og hjólreiðastíga. Mótvægisaðgerðir felist í tengingu göngustíga, göngustígagerðar og áningastaða innan Búðarár.
-
Bæjarstjórn, fundur 203 liður 2.3
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 147“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 153 liður 8
Tvær athugasemdir sem bárust voru lagðar fram til kynningar og nefndin fól formanni sínum og bæjarstjóra að funda með forsvarsmönnum Skógræktarfélags Reyðarfjarðar.
Endursögn gervigreindar
Tvær athugasemdir bárust og eru lagðar fram til kynningar. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að fela formanni nefndarinnar og bæjarstjóra að funda með forsvarsmönnum Skógræktarfélags Reyðarfjarðar fyrir næsta fund nefndarinnar.
-
Bæjarstjórn, fundur 206 liður 4.8
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 153“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 160 liður 2
Nefndin samþykkti deiliskipulagið fyrir sitt leyti, taldi athugasemdirnar ekki kalla á breytingar og lagði áherslu á að starfsemi hæfist ekki á svæðinu fyrr en öllum kröfum um hljóðvist, öryggi og ásýnd væri fullnægt.
Endursögn gervigreindar
Boðað var til íbúafundar og í kjölfarið skipulagið auglýst að nýju. Auglýsingartími er liðinn, tvær athugasemdir bárust. Fundað hefur verið með Skógræktarfélagi Reyðarfjarðar. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti deiliskipulag aksturs- og skotíþróttasvæðis vestan Bjarga á Reyðarfirði, skipulagsuppdráttur, greinargerð og umhverfisskýrsla, dagsett 16. júní 2016. Nefndin telur að þær athugasemdir sem fram eru komnar séu ekki þessi eðlis að breyta þurfi tillögunni. Málsmeðferð verði í samræmi við 42. gr. skipulagslaga. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarstjórnar.
Lesa alla bókunina (59 orð til viðbótar)
Nefndin felur jafnframt umhverfisstjóra, í samráði við forsvarsmenn Skógræktarfélags Reyðarfjarðar, að skilgreina og gera samkomulag um framtíðar skógræktarsvæði í Reyðarfirði. Þá telur nefndin nauðsynlegt að skoðað verði frekara skipulag útivistarsvæða í Reyðarfirði og mun taka það til skoðunar. Lögð er áhersla á að starfsemi hefjist ekki á svæðinu fyrr en öllum kröfum um hljóðvist, öryggi og ásýnd séu uppfyllt.
-
Bæjarstjórn, fundur 211 liður 14
Bæjarstjórn samþykkti með 8 atkvæðum deiliskipulagið, með skipulagsuppdrætti, greinargerð og umhverfisskýrslu dagsettum 16. júní 2016.
Endursögn gervigreindar
Varaforseti bæjarstjórnar fylgdi breytingum á deiliskipulagi úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Tvær athugasemdir bárust. Bæjarstjórn telur að þær athugasemdir sem fram eru komnar séu ekki þessi eðlis að breyta þurfi tillögunni og samþykkir með 8 atkvæðum deiliskipulag aksturs- og skotíþróttasvæðis vestan Bjarga á Reyðarfirði, skipulagsuppdráttur, greinargerð og umhverfisskýrsla, dagsett 16. júní 2016. Málsmeðferð verði í samræmi við 42. gr. skipulagslaga.
-
Bæjarstjórn, fundur 211 liður 5.2
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 160“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.