Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarstjórn

Bæjarstjórn, fundur 211

17. nóvember 2016, kl. 16:00 til 16:50, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Valdimar O Hermannsson, aðalmaður
  • Pálína Margeirsdóttir, aðalmaður
  • Hulda Sigrún Guðmundsdóttir, aðalmaður
  • Elvar Jónsson, aðalmaður
  • Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Dagskrá

  1. 1. Bæjarráð - 496

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð bæjarráðs frá 7.nóvember 2016, staðfest með 8 atkvæðum.

    1. 1.1 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 20171605024
    2. 1.2 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2018 - 20201610152
    3. 1.3 Rekstur málaflokka 2016 - TRÚNAÐARMÁL1602052
    4. 1.4 Mótmæli vegna fyrirhugaðs flutnings á Sjóminjasafni og Jenssenshúss út í Mjóeyrarvík - undirskriftarlisti1611024
    5. 1.5 Fundur formanna sambanda með starfshóp um endurskoðun rekstrarfyrirkomulags flugvalla1611008
    6. 1.6 Rekstur Félagslundar 20161605020
    7. 1.7 Kirkjustígur 7 - Fyrirhugaðar framkvæmdir við Lambeyrará1610185
    8. 1.8 Snjómokstur í Fjarðabyggð 2016/20171609102
    9. 1.9 Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2016/20171609042
    10. 1.10 Fundargerðir Samband íslenskra sveitarfélaga 20161603017
    11. 1.11 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 1581610015F
    12. 1.12 Hafnarstjórn - 1681610013F
  2. 2. Bæjarráð - 497

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 14.nóvember 2016 staðfest með 8 atkvæðum.

    1. 2.1 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 20171605024
    2. 2.2 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2018 - 20201610152
    3. 2.3 755 Sævarendi - umsókn um lóð undir jarðspennistöð1609105
    4. 2.4 Snjómokstur í Fjarðabyggð 2016/20171609102
    5. 2.5 Bygging leikskóla á Neseyri1402081
    6. 2.6 Raforkusölusamningar við Fjarðabyggð og Hafnarsjóð1609091
    7. 2.7 Fundagerðir framkvæmdastjórnar Skólaskriftofu Austurlands 20161601185
    8. 2.8 Aðalfundur Skólaskrifstofu Austurlands 4. nóvember 20161610189
    9. 2.9 Ágóðahlutagreiðsla 2016 - Brunabót1609175
    10. 2.10 Krafa frá kennurum til sveitarfélaga1611052
    11. 2.11 Aðkeyrsla að Melbæ; 7351611004
    12. 2.12 Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2016/20171609042
    13. 2.13 Endurnýjun á rekstrar- og uppbyggingarsamningum við íþróttafélög í Fjarðabyggð sem reka eigin íþróttaaðstöðu1608047
    14. 2.14 Starfs- og fjárhagsáætlun 2017 í íþrótta- og tómstundamálum1605167
    15. 2.15 Framkvæmdaráð hjúkrunarheimila í Fjarðabyggð1609135
    16. 2.16 Ung fólk 2016 - lýðheilsa ungs fólks í Fjarðabyggð1609157
    17. 2.17 Þátttaka í fjármögnun verkefnis, Orkuskipti á Austurlandi.1611053
    18. 2.18 Fundargerðir Héraðsskjalasafns Austfirðinga 20161602127
    19. 2.19 Europa Nostra menningarverðlaun ESB1608097
    20. 2.20 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 1591611004F
    21. 2.21 Menningar- og safnanefnd - 271611002F
    22. 2.22 Félagsmálanefnd - 891611001F
    23. 2.23 Fræðslunefnd - 331611005F
    24. 2.24 Íþrótta- og tómstundanefnd - 291611006F
  3. 3. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 158

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 158, 159 og 160, teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tók Páll Björgvin Guðmundsson.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 2.nóvember 2016, staðfest með 8 atkvæðum.

    1. 3.1 Náttúrustofa Austurlands - kerfisbundin úttekt á villtu dýralífi í Fólkvanginum Neskaupstað1608056
    2. 3.2 735 Bleiksárhlíð 60 - byggingarleyfi, gönguhurð1610177
    3. 3.3 755 Sævarendi 1 - byggingarleyfi, breytt notkun1610200
    4. 3.4 Geymslusvæði og stöðuleyfi fyrir gáma og lausafé í Fjarðabyggð1402076
    5. 3.5 730 Sunnugerði - botnlangi1611002
    6. 3.6 Goðatindur - ljósleiðari1610196
    7. 3.7 Strenglagning um Brekkugjá - beiðni um umsögn1610171
    8. 3.8 Göngustígar í Fjarðabyggð1606061
    9. 3.9 Ársfundur náttúruverndarnefnda og umhverfisstofnunar 20161610112
    10. 3.10 Kirkjustígur 7 - Fyrirhugaðar framkvæmdir við Lambeyrará1610185
    11. 3.11 Snjómokstur í Fjarðabyggð 2016/20171609102
  4. 4. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 159

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 158, 159 og 160, teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 7. nóvember 2016, samþykkt með 8 atkvæðum.

    1. 4.1 Drög að nýrri reglugerð um heimagistingu o.fl.1611016
    2. 4.2 Ósk um opinn fund vegna deiliskipulags við Hlíðarenda á Eskifirði1610188
    3. 4.3 Mótmæli vegna fyrirhugaðs flutnings á Sjóminjasafni og Jenssenshúss út í Mjóeyrarvík - undirskriftarlisti1611024
    4. 4.4 Lagfæring á veg frá Viðfirði út að Barðsnesi sunnan Norðfjarðar1610002
    5. 4.5 Viðbygging við leikskólann Lyngholt1611029
  5. 5. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 160

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 158, 159 og 160, teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 14. nóvember 2016, staðfest með 8 atkvæðum.

    1. 5.1 730 Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 breyting - stækkun akstursíþróttasvæðis og nýs skotsvæðis vestan Bjarga á Reyðarfirði1403113
    2. 5.2 730 - Deiliskipulag aksturs- og skotíþróttasvæða vestan Bjarga1109100
    3. 5.3 755 Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027 breyting ? þéttbýlisuppdráttur fyrir Stöðvarfjörð, reitur I11611050
    4. 5.4 750 Skólavegur 12 - endurnýjun á lóðaleigusamningi1610114
    5. 5.5 750 Skólavegur 14 - endurnýjun á lóðasamningi1609104
    6. 5.6 740 Hólsgata 8 - Byggingarleyfi /breyting úti1611049
    7. 5.7 Goðatindur framkvæmdaleyfi - ljósleiðari1610196
    8. 5.8 Viðbyggingaþörf við leikskóla á Eskifirði og Reyðarfirði1611044
    9. 5.9 Göngustígar í Fjarðabyggð1606061
    10. 5.10 Verkáætlun Stapa er varðar neysluvatn, varmadælur og jarðhita fyrri hluta árs 20161607111
    11. 5.11 Viðhaldsvinna í Drangagili 2015 og 20161505170
    12. 5.12 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 20171605024
    13. 5.13 Aðkeyrsla að Melbæ; 7351611004
  6. 6. Hafnarstjórn - 168

    Fundargerðin í heild

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 31.október 2016 staðfest með 8 atkvæðum.

    1. 6.1 Umsókn um undanþágu frá lóðsskyldu Samskip Skaftafell 23.september 20161609148
    2. 6.2 Umsókn um undanþágu frá lóðsskyldu fyrir Capt. Lesniak Jakub á Mv Marmaui1610004
    3. 6.3 715 Mjóifjörður flotbryggjur1610186
    4. 6.4 735 Hafnarsvæði Eskifirði - hugmyndavinna1603089
    5. 6.5 750 Bygging hafnarkants við frystigeymslu á Fáskrúðsfirði1505078
    6. 6.6 10.000 tonna framleiðsla á laxi í Stöðvarfirði - beiðni um umsögn1609087
    7. 6.7 10.000 tonna laxeldi í Mjóafirði og Norðfjarðarflóa - beiðni um umsögn1609085
    8. 6.8 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20161601010
    9. 6.9 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20161601010
    10. 6.10 Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 2017 ásamt langtímaáætlun1605165
  7. 7. Fræðslunefnd - 33

    Fundargerðin í heild

    Til máls tóku: Pálína Margeirsdóttir, Elvar Jónsson, Einar Már Sigurðarson, Valdimar O Hermannsson.

    Fundargerð fræðslunefndar frá 10.nóvember 2016 staðfest með 8 atkvæðum.

    1. 7.1 Aðalfundur Skólaskrifstofu Austurlands 4. nóvember 20161610189
    2. 7.2 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 20171605024
    3. 7.3 Gjaldskrá tónlistarskóla 20171610060
    4. 7.4 Gjaldskrá leikskóla 20171610059
    5. 7.5 Gjaldskrá skólamats í grunnskólum 20171610058
    6. 7.6 Gjaldskrá skóladagheimila 20171610056
    7. 7.7 Gjaldskrá grunnskóla 20171610054
    8. 7.8 Ung fólk 2016 - lýðheilsa ungs fólks í Fjarðabyggð1609157
    9. 7.9 Umsókn um ytra mat leikskóla1611032
    10. 7.10 Viðbyggingaþörf við leikskóla á Eskifirði og Reyðarfirði1611044
  8. 8. Menningar- og safnanefnd - 27

    Fundargerðin í heild

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 9.nóvember 2016 staðfest með 8 atkvæðum.

    1. 8.1 Menningarmiðstöðvar á Austurlandi
    2. 8.2 Styrkumsókn vegna jólatónleika í dvalarheimili aldraðra
    3. 8.3 Stuðningur við Snorraverkefnið 2017
    4. 8.4 Fundargerðir Héraðsskjalasafns Austfirðinga 2016
    5. 8.5 Aðalfundur Héraðsskjalasafns Austfirðinga 2016 - 3.nóvember
    6. 8.6 Málefni Kirkju- og menningarmiðstöðvarinnar 2016
  9. 9. Íþrótta- og tómstundanefnd - 29

    Fundargerðin í heild

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 10.nóvember 2016 staðfest með 8 atkvæðum.

    1. 9.1 Endurnýjun á rekstrar- og uppbyggingarsamningum við íþróttafélög í Fjarðabyggð sem reka eigin íþróttaaðstöðu
    2. 9.2 Fundir Ungmennaráðs Fjarðabyggðar 2016 - 2017
    3. 9.3 Dekkjakurl á spark- og knattspyrnuvöllum í Fjarðabyggð
    4. 9.4 Heilsueflandi samfélag - Fjarðabyggð
    5. 9.5 Ályktun frá aðalfundi KFF um málefni Eskjuvallar
    6. 9.6 Starfs- og fjárhagsáætlun 2017 í íþrótta- og tómstundamálum
  10. 10. Félagsmálanefnd - 89

    Fundargerðin í heild

    Til máls tók Valdimar O Hermannsson.

    Fundargerð félagsmálanefndar frá 8.nóvember 2016 staðfest með 8 atkvæðum.

    1. 10.1 Framkvæmdaráð hjúkrunarheimila í Fjarðabyggð1609135
    2. 10.2 Málefni íbúa í Hulduhlíð - Trúnaðarmál1608104
    3. 10.3 Rammasamningur um rekstur hjúkrunarheimila1611031
    4. 10.5 Öldungaráð1610001
    5. 10.6 Styrkbeiðni vegna Stígamóta 20171610153
    6. 10.7 Áhrif nýrrar húsnæðislöggjafar gagnvart sveitarfélögum1608100
    7. 10.8 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 20171605024
    8. 10.9 Undanþágur frá íbúafjölda þjónustusvæða í málaflokki fatlaðs fólks1610199
    9. 10.10 Reglur sveitarfélaga um húsnæðismál og staðan í vinnu við leiðbeiningar velferðarráðuneytisins1610178
    10. 10.11 Gjaldskrá félagslegrar heimþjónustu 20171610053
    11. 10.12 Gjaldskrá þjónustuíbúða í Breiðablik 20171610028
    12. 10.13 Gjaldskrá ferðaþjónustu 20171610027
    13. 10.14 Gjaldskrá Fjölskyldusviðs 2017 vegna stuðningsfjölskyldna við fötluð börn1610025
    14. 10.15 Reglur um fjárhagsaðstoð1009112
  11. 11. Fjárhagsáætlun 2016 - viðauki 5

    Mál 1611058 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri fylgdi viðauki nr. 5 við fjárhagsáætlun ársins 2016 um framkvæmdakostnað í Eignarhaldsfélaginu Hrauni ehf. og eignfærðar tekjur í Eignasjóði.

    Lagt er til að framkvæmdakostnaður Eignarhaldsfélagsins Hrauns ehf. við byggingu leikskóla í Neskaupstað verði hækkaður um 35 milljónir króna og verði samtals áætlaður 348 milljónir króna í fjárhagsáætlun ársins 2016. Enn fremur er lagt til að fjármagna þennan aukna framkvæmdakostnað af eigin fé Eignarhaldsfélagsins Hrauns ehf. og mun viðskiptastaða félagsins við Aðalsjóð breytast sem því nemur.

    Jafnframt er lagt til að álagðar gatnagerðargjaldatekjur Eignarsjóð verði hækkaðar um 35 milljónir króna og verði samtals 55 milljónir króna í fjárhagsáætlun ársins 2016. Enn fremur er lagt til að verja hinum auknu gatnagerðargjaldatekjum til hækkunar á eigin fé Eignarsjóðs og mun viðskiptastaða sjóðsins við Aðalsjóð breytast sem því nemur.

    Handbært fé Aðalsjóðs mun ekki breytast við samþykkt þessa viðauka og nema kr. 152.135.000 í árslok 2016.

    Enginn tók til máls.

    Viðauki nr. 5 samþykktur með 8 atkvæðum.

  12. 12. Snjómokstur í Fjarðabyggð 2016/2017

    Mál 1609102 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri fylgdi reglum um snjómokstur í Fjarðabyggð úr hlaði.

    Framlagðar skipulags- og verklagsreglur er varða snjómokstur í Fjarðabyggð með minnisblaði forstöðumanns framkvæmda- og þjónustumiðstöðvar.

    Enginn tók til máls.

    Reglurnar staðfestar með 8 atkvæðum.

  13. 13. 730 Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 breyting - stækkun akstursíþróttasvæðis og nýs skotsvæðis vestan Bjarga á Reyðarfirði

    Mál 1403113 Allur ferill málsins

    Varaforseti bæjarstjórnar fylgdi breytingum á aðalskipulagi úr hlaði.

    Enginn tók til máls.

    Boðað var til íbúafundar og í kjölfarið var skipulagið auglýst að nýju. Auglýsingartími er liðinn, tvær athugasemdir bárust. Fundað hefur verið með Skógræktarfélagi Reyðarfjarðar. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, breytingarnar.

    Bæjarstjórn telur að þær athugasemdir sem fram eru komnar séu ekki þessi eðlis að breyta þurfi tillögunni og samþykkir með 8 atkvæðum breytingar á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027, vegna stækkunar akstursíþróttasvæðis og nýs skotsvæðis vestan Bjarga á Reyðarfirði, skipulagsuppdráttur, greinargerð og umhverfisskýrsla, dagsett 16. júní 2016. Málsmeðferð verði í samræmi við 32. gr. skipulagslaga.

  14. 14. 730 - Deiliskipulag aksturs- og skotíþróttasvæða vestan Bjarga

    Mál 1109100 Allur ferill málsins

    Varaforseti bæjarstjórnar fylgdi breytingum á deiliskipulagi úr hlaði.

    Enginn tók til máls.

    Tvær athugasemdir bárust. Bæjarstjórn telur að þær athugasemdir sem fram eru komnar séu ekki þessi eðlis að breyta þurfi tillögunni og samþykkir með 8 atkvæðum deiliskipulag aksturs- og skotíþróttasvæðis vestan Bjarga á Reyðarfirði, skipulagsuppdráttur, greinargerð og umhverfisskýrsla, dagsett 16. júní 2016. Málsmeðferð verði í samræmi við 42. gr. skipulagslaga.

  15. 15. 755 Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027 breyting ? þéttbýlisuppdráttur fyrir Stöðvarfjörð, reitur I1

    Mál 1611050 Allur ferill málsins

    Varaforseti bæjarstjórnar fylgdi hugmyndum um breytingu á aðalskipulagi úr hlaði.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 8 atkvæðum að hefja skipulagsferli við breytingu Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 þannig að hægt verði að útbúa íbúðir í húsinu að Sævarenda 1 á Stöðvarfirði.

  16. 16. Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2016/2017

    Mál 1609042 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri fylgdi reglunum úr hlaði.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn staðfestir með 8 atkvæðum reglur um sérstök skilyrði vegna úthlutunar byggðakvóta. Lögð er áherslu á að veitt verði undanþága þar sem vikið verði frá skilyrðum reglugerðar nr. 641/2016 um tvöföldun aflamagns. Þá er óskaði eftir rökstuðningi Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins fyrir því að veita ekki byggðakvóta til annarra bæjarkjarna í Fjarðabyggð en Mjóafjarðar og Stöðvarfjarðar.