Fjárhagsáætlun 2016 - viðauki 5
Mál 1611058 Á dagskrá 17. nóvember 2016. 1 færsla í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrár
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2016
Bæjarstjórn, fundur 211 liður 11
Bæjarstjóri fylgdi viðauki nr. 5 við fjárhagsáætlun ársins 2016 um framkvæmdakostnað í Eignarhaldsfélaginu Hrauni ehf. og eignfærðar tekjur í Eignasjóði.
Lesa alla bókunina (134 orð til viðbótar)
Lagt er til að framkvæmdakostnaður Eignarhaldsfélagsins Hrauns ehf. við byggingu leikskóla í Neskaupstað verði hækkaður um 35 milljónir króna og verði samtals áætlaður 348 milljónir króna í fjárhagsáætlun ársins 2016. Enn fremur er lagt til að fjármagna þennan aukna framkvæmdakostnað af eigin fé Eignarhaldsfélagsins Hrauns ehf. og mun viðskiptastaða félagsins við Aðalsjóð breytast sem því nemur.
Jafnframt er lagt til að álagðar gatnagerðargjaldatekjur Eignarsjóð verði hækkaðar um 35 milljónir króna og verði samtals 55 milljónir króna í fjárhagsáætlun ársins 2016. Enn fremur er lagt til að verja hinum auknu gatnagerðargjaldatekjum til hækkunar á eigin fé Eignarsjóðs og mun viðskiptastaða sjóðsins við Aðalsjóð breytast sem því nemur.
Handbært fé Aðalsjóðs mun ekki breytast við samþykkt þessa viðauka og nema kr. 152.135.000 í árslok 2016.
Enginn tók til máls.
Viðauki nr. 5 samþykktur með 8 atkvæðum.