Viðbygging við leikskólann Lyngholt
Mál 1611029 Fyrst á dagskrá 6. nóvember 2016, síðast 19. nóvember 2018. 24 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, Fræðslunefnd.
Í heiti málsins: Byggingar og framkvæmdirSkólar og fræðsla
Í hnotskurn
Málið snýst um að stækka leikskólann Lyngholt á Reyðarfirði vegna fjölgunar barna á leikskólaaldri. Félagslundur var nýttur til bráðabirgða og síðast samþykkti bæjarráð að ganga til samninga við Launafl ehf. um viðbygginguna91523.
Staðan
Bæjarráð hefur samþykkt að gengið verði til samninga við Launafl um viðbyggingu við leikskólann Lyngholt23.
Gervigreind skrifaði þetta yfirlit upp úr fundargerðum og upptökum. Hver tala vísar í færslu í ferlinum hér fyrir neðan. Þar er heimildin sjálf. Svona er yfirlitið unnið.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2016
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 159 liður 5
Nefndin fékk minnisblöð fræðslustjóra, sviðsstjóra og arkitekts hjá Batteríinu og samþykkti tillögur um að Félagslundur hentaði ekki sem skólahúsnæði.
Endursögn gervigreindar
Lagt fram minnisblað fræðslustjóra og sviðstjóra framkvæmda-, umhverfis- og veitusviðs vegna nýtingar Félagslundar einnig lagt fram minnisblað frá Sigurði Harðarsyni arkitekt á Batteríinu.
Eigna-, skipulags- og umhvefisnefnd samþykkir tillögur í minnisblaði um að Félagslundur henti ekki sem skólahúsnæði.
-
Bæjarstjórn, fundur 211 liður 4.5
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 159“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
2017
Fræðslunefnd, fundur 39 liður 4
Fræðslustjóri sagði frá hönnun fyrirhugaðra viðbygginga við leikskólana á Eskifirði og Reyðarfirði og frá því að samið hefði verið við arkitektastofuna Batteríið um hönnunina.
Endursögn gervigreindar
Fræðslustjóri gerði grein fyrir hönnunarvinnu tengdri fyrirhuguðum viðbyggingum við leikskólana á Eskifirði og Reyðarfirði. Samið var við arkitektastofuna Batteríið að hanna viðbyggingarnar.
-
Bæjarstjórn, fundur 220 liður 8.4
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 39“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 183 liður 3
Frumteikningar voru kynntar og fól nefndin sviðsstjóra að vinna málið áfram. Hún tók einnig undir bókun fræðslunefndar um að viðbygging væri brýn vegna fjölgunar barna.
Endursögn gervigreindar
Lagðar fram til kynningar frumteikningar af viðbyggingum við leikskólana á Reyðarfirði og Eskifirði. Nefndinni líst á framkomar teikningar og felur sviðstjóra áframhaldandi vinnu við málið. Jafnframt tekur nefndin undir bókun fræðslunefndarinnar frá 43. fundi þann 23. ágúst síðastliðinn um að viðbygging við leikskólann sé brýn vegna fjölgunar barna þar.
-
Bæjarstjórn, fundur 227 liður 5.3
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 183“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 536 liður 8
Bæjarráð fól fræðslustjóra og sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs að leggja fram útfærða valkosti í húsnæðismálum leikskólans.
Endursögn gervigreindar
Bæjarráð samþykkir að fela fræðslustjóra og sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs að leggja fyrir bæjarráð útfærða valkosti í húsnæðismálum Leikskólans Lyngholts vegna fjölgunar á leikskólarýmum til að bregðast við þörf vegna fjölgunar barna á leikskólaaldri á Reyðarfirði.
-
Bæjarstjórn, fundur 229 liður 2.8
Fundargerðin „Bæjarráð - 536“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Fræðslunefnd, fundur 47 liður 7
Fræðslunefnd ræddi að húsnæðið gæti ekki tekið við öllum 12 mánaða börnum um áramótin. Fram kom að nýting Félagslundar þætti vænlegri kostur en laus kennslustofa og nefndin lagði áherslu á að flýta vinnunni.
Endursögn gervigreindar
Fræðslunefnd ræddi um fyrirhugaða stækkun leikskólans Lyngholts á Reyðarfirði og hvernig bregðast megi við þeirri stöðu sem upp kemur um áramótin 2017-2018 þegar núverandi leikskólahúsnæði getur ekki lengur tekið á móti öllum börnum sem orðin eru 12 mánaða. Fræðslustjóri, leikskólastjóri og sviðsstjóri framkvæmda- og umhverfissviðs hafa undanfarið skoðað möguleika á að koma fyrir lausri kennslustofu í námunda við skólann og skoða nýtingu á Félagslundi fyrir leikskóladeild. Það er álit fyrrnefndra aðila að erfitt sé að staðsetja lausa kennslustofu í námunda við skólann án þess að hún stæði í vegi fyrir framkvæmdum við viðbyggingu. Nýting á Félagslundi þykir vænlegri kostur og Heilbrigðiseftirlit Austurlands hefur gert úttekt á húsnæðinu og gert athugasemdir sem bregðast þarf við. Nú er unnið að því að kostnaðarmeta breytingar á húnæðinu og yfirfara á hvern hátt deild verði best komið fyrir í húsnæðinu. Fræðslunefnd leggur mikla áherslu á að flýta vinnunni þannig að áfram verði hægt að bjóða öllum börnum sem orðin eru 12 mánaða upp á leikskólavist.
-
Bæjarráð, fundur 537 liður 1
Bæjarráð fól sviðsstjóra og fræðslustjóra að leggja fram kostnaðaráætlun vegna endurbóta á Félagslundi.
Endursögn gervigreindar
Bæjarráð fól á fundi sínum 2. október sl. fræðslustjóra og sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs, að leggja fyrir bæjarráð útfærða valkosti í húsnæðismálum Leikskólans Lyngholts vegna fjölgunar á leikskólarýmum til að bregðast við þörf vegna fjölgunar barna á leikskólaaldri á Reyðarfirði. Tveir kostir voru skoðaðir sérstaklega, laus kennslustofa yrði sett upp við Leikskólann Lyngholt eða að félagsheimilið Félagslundur yrði nýtt undir starfsemina. Mat fræðslustjóra er að skoða nánar útfærslur á nýtingu Félagslundar.
Bæjarráð felur sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs og fræðslustjóra að leggja fram kostnaðaráætlun vegna endurbóta á Félagslundi og leggja fyrir bæjarráð að nýju.
-
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 188 liður 27
Lögð var fram kostnaðaráætlun um breytingar á Félagslundi fyrir eina leikskóladeild til bráðabirgða. Nefndin fól sviðsstjórum að vinna málið áfram og vísaði kostnaðarauka til bæjarráðs.
Endursögn gervigreindar
Lögð fram kostnaðaráætlun sviðstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs fyrir þeim breytingum sem þarf að fara í á félagslundi til að þar megi koma fyrir til bráðabirgða einni deild á leikskólanum Lyngholti.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs ásamt sviðstjóra fræðslumála að vinna málið áfram í samræmi við framlagða kostnaðaráætlun jafnframt er kostnaðarauka vísað til afgreiðslu bæjarráðs.
-
Bæjarráð, fundur 538 liður 29.7
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 47“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 230 liður 1.1
Fundargerðin „Bæjarráð - 537“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 230 liður 5.7
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 47“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 539 liður 1
Bæjarráð samþykkti framkvæmdir við Félagslund fyrir starfsemi leikskólans og fól fjármálastjóra að leita leiða til að fjármagna þær innan fjárhagsáætlunar ársins.
Endursögn gervigreindar
Lögð fram kostnaðaráætlun sviðstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs vegna þeirra breytinga sem þarf að ráðast í við Félagslund til að þar megi koma fyrir til bráðabirgða, einni deild á leikskólanum Lyngholti.
Á fundi eigna- skipulags- og umhverfisnefndar 16.október var sviðstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs ásamt fræðslustjóra, falið að vinna málið áfram í samræmi við framlagða kostnaðaráætlun. Jafnframt var kostnaðarauka vísað til afgreiðslu bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir að farið verði í framkvæmdir við Félagslund til að hægt sé að nýta húsnæðið fyrir starfsemi leikskólans.
Fjármálastjóra falið í samráði við sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs að leita leiða til að fjármagna framkvæmdina innan fjárhagsáætlunar ársins.
-
Bæjarstjórn, fundur 231 liður 1.1
Fundargerðin „Bæjarráð - 539“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 231 liður 3.27
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 188“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
2018
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 195 liður 4
Nefndin fól sviðsstjóra að halda áfram hönnun viðbyggingar á grunni frumhönnunar og að skoða fyrst hvort nýta mætti Félagslund og lóð hans sem hluta af leikskólanum.
Endursögn gervigreindar
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðstjóra að vinna áfram að hönnun viðbyggingu við leikskólann Lyngholti og byggja á frumhönnun sem unnin var síðasta haust. Fyrst verði skoðað að nota Félagslund sem hluta af leikskólanum ásamt lóð og leggja fyrir nefndina að nýju.
-
Bæjarráð, fundur 549 liður 11.4
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 195“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 196 liður 11
Teikningar af frumhönnun voru kynntar og fól nefndin sviðsstjóra að láta vinna þær áfram.
Endursögn gervigreindar
Teikningar af frumhönnun lagðar fram til kynningar, nefndinni lýst vel á teikningarnar og felur sviðstjóra að láta vinna þær áfram.
-
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 200 liður 16
Drög að teikningum voru kynnt og boðað var að kynningarfundur yrði haldinn með foreldrafélagi leikskólans.
Endursögn gervigreindar
Drög að teikningum lagðar fram til kynningar. Kynningarfundur verður með foreldrafélagi leikskólans Lyngholts á Reyðarfirði. Tekið fyrir í nefndinni að nýju á næsta fundi.
-
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 219 liður 6
Tilboð bárust frá Launafli ehf. og MVA ehf. Nefndin lagði til að hagkvæmasta tilboðinu yrði tekið og vísaði málinu til bæjarráðs.
Endursögn gervigreindar
Lögð fram fundargerð vegna opnunar tilboða í viðbygginu við Leikskólann Lyngholt á Reyðarfirði, frá 29. október 2018. Tilboð bárust frá Launafli ehf og MVA ehf.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að hagkvæmasta tilboðinu verði tekið í verkið "viðbygging leikskólans Lyngholt" og vísar málinu til afgreiðslu bæjarráðs.
-
Bæjarráð, fundur 589 liður 11
Bæjarráð samþykkti að ganga til samninga við Launafl samkvæmt frávikstilboði sem var hagkvæmasta tilboðið. Fulltrúi Miðflokksins vildi hafna öllum tilboðum og bjóða verkið út að nýju í mars 201924.
Endursögn gervigreindar
Lögð fram fundargerð vegna opnunar tilboða í viðbyggingu við Leikskólann Lyngholt á Reyðarfirði, frá 29. október 2018. Tilboð bárust frá Launafli ehf og MVA ehf. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að hagkvæmasta tilboðinu verði tekið í verkið "viðbygging leikskólans Lyngholt" og vísar málinu til afgreiðslu bæjarráðs. Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga við Launafl skv. frávikstilboði, en það tilboð er hagkvæmasta tilboð, vegna viðbyggingar við Leikskólann Lyngholt.
Fulltrúi Miðflokksins vill hafna öllum tilboðum í verkið. Þess í stað verði verkið boðið aftur út í mars 2019 og það hefjist í maí 2019.
-
Bæjarráð, fundur 589 liður 22.6
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 219“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.