NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 195
15. janúar 2018, kl. 16:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Marinó Stefánsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Einar Már Sigurðarson, aðalmaður
- Ragnar Sigurðsson, varaformaður
- Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Valur Sveinsson, embættismaður
- Marinó Stefánsson, embættismaður
- Anna Berg Samúelsdóttir, embættismaður
- Þorsteinn Sigurjónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 549 liður 11
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 195 frá 15.janúar 2018, lögð fram til kynningar.
Dagskrá
-
1. 740 Landanaust 3 - Umsókn um lóð
Mál 1801099 Allur ferill málsins
Lögð fram lóðarumsókn Fjarðanets hf, dagsett 12. janúar 2018, þar sem sótt er um lóðina Landanaust 3 á Norðfirði undir atvinnuhúsnæði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni að Landanausti 3 og vísar umsókninni til Hafnarstjórnar til umfjöllunar og bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.
-
2. 740 Þiljuvellir 27 - byggingarleyfi
Mál 1801072 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Höskuldar Björgúlfssonar, dagsett 9. janúar 2018, þar sem sótt er um leyfi til að breyta húsnæði hans að Þiljuvöllum 27 á Norðfirði að innan með því að fjarlægja þar burðarvegg. Aðalhönnuður er Gunnar Larsson.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi.
-
3. 740 Kirkjuból - kæra varðaðandi ákvörðun bæjarstjórnar Fjarðabyggðar vegna stækkunar reits O5 á Kirkjubólseyrum
Mál 1702227 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar, krafa ábúenda Kirkjubóls í Norðfirði, dagsett 4. janúar 2018, til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála um stöðvun fyrirhugaðra framkvæmda til bráðabirgða vegna skipulagsbreytinga í landi Kirkjubóls.
-
4. Viðbygging við leikskólann Lyngholt
Mál 1611029 Allur ferill málsins
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðstjóra að vinna áfram að hönnun viðbyggingu við leikskólann Lyngholti og byggja á frumhönnun sem unnin var síðasta haust. Fyrst verði skoðað að nota Félagslund sem hluta af leikskólanum ásamt lóð og leggja fyrir nefndina að nýju.
-
5. Ferilsprófun á jarðhitasvæðinu í Eskifirði
Mál 1801102 Allur ferill málsins
Kynning sviðsstjóra veitusviðs á skýrslu ÍSOR, Ferilprófun á jarðhitasvæðinu í Eskifirði.
-
6. Beiðni um umsögn vegna tillögu að matsáætlun - 520.000 m3 efnistaka við Eyri í Reyðarfirði
Mál 1801058 Allur ferill málsins
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur engar athugasemdir við tillögu að matsáætlun Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar á 520.000 efnistöku við Eyri í Reyðarfirði. Skipulags- og byggingarfulltrúa er falið að svara erindi Skipulagsstofnunar í samræmi við niðurstöður nefndarinnar.
-
7. Efnistaka í landi Sléttu Reyðarfirði - beiðni um umsögn
Mál 1710125 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar bréf Skipulagsstofnunar, dagsett 20. desember 2017, þar sem fram kemur að stofnunin telji að fyrirhugð 45.000 m3 efnistaka í Sléttuá sé ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
-
8. Erindi um að Fjarðabyggð verði tilraunasveitarfélag í stórátaki í loftslagsmálum með endurheimt votlendis
Mál 1712103 Allur ferill málsins
Um nokkurt skeið hefur hópur einstaklinga og stofnana unnið að því að undirbúa stórtæka endurheimt votlendis í verkefni sem gengur undir vinnuheitinu "Votlendisbankinn". Núverandi samstarfsaðilar verkefnisins eru m.a. París 1,5° áhugahópur um árangur í loftslagsmálum, Landgræðsla Íslands, Landbúnaðarháskólinn, Fuglavernd, Landvernd, Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Suðurlandi, Þekkingarmiðlun, EFLA verkfræðistofa, Klappir og Auðlind náttúrusjóður. Óskað er eftir afstöðu Fjarðabyggðar til verkefnisins. Bæjarráð samþykkir að Fjarðabyggð taki þátt í verkefninu en nú þegar eru viðræður við Landgræðslu ríkisins um aðkomu að endurheimtu votlendis. Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar til kynningar. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur umhverfisstjóra að hefja undirbúning að þátttöku Fjarðabyggðar í verkefninu og leggja fyrir nefndina að nýju
-
9. Aukin framleiðsla á laxi í Reyðarfirði um 10.000 tonn - beiðni um umsögn á frummatsskýrslu
Mál 1801087 Allur ferill málsins
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur Umhverfisstjóra, atvinnu- og þróunarstjóra, skipulags- og byggingarfulltrúa og framkvæmdastjóra Fjarðabyggðarhafna að hefja undirbúning að umsögn um skýrsluna og leggja fyrir nefndina.
-
10. Tjaldsvæði í Fjarðabyggð 2018
Mál 1801096 Allur ferill málsins
Til kynningar og umsagnar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd staðan á tillögum að rekstri tjaldsvæða í Fjarðabyggð. Nefndin felur umhverfisstjóra að vinna áfram að málinu og leggja fyrir nefndina að nýju.