Bæjarráð, fundur 549
22. janúar 2018, kl. 08:30 til 10:15, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jens Garðar Helgason, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
Dagskrá
-
1. Móttaka flóttamanna á árinu 2018
Mál 1710151 Allur ferill málsins
Drög að samningi vegna móttöku kvótaflóttamanna til Fjarðabyggðar lagður fram til samþykkktar. Jafnframt lagt fram minnisblað félagsmálastjóra og fræðslustjóra. Málið hefur verið til umræðu í félagsmálanefnd og fræðslunefnd á síðustu fundum nefndanna. Bæjarráð samþykkir drög að samningi og felur bæjarstjóra að undirrita samninginn og félagsmálastjóra og fræðslustjóra að vinna áfram að málinu.
-
2. Geymslusvæði og stöðuleyfi fyrir gáma og lausafé í Fjarðabyggð
Mál 1402076 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað skipulags- og byggingarfulltrúa vegna stöðuleyfa og stöðuleyfisskylda lausafjármuni dagsett 16. nóvember 2017 og minnispunktar Land lögmanna varðandi stjórnsýslu vegna lausafjármuna. Lögð fram tillaga að breytingu á reglum um stöðuleyfi lausafjármuna í Fjarðabyggð.
Bréf hafa verið send á alla lóðarhafa þar sem stöðuleyfisskyldir lausafjármunir án stöðuleyfa eru staðsettir og þeir hvattir til að sækja um stöðuleyfi. Bréf þar sem lóðarhöfum er gefinn andmælaréttur vegna stöðuleyfisskyldu, hefur verið sent á þá sem ekki hafa brugðist við.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd fól skipulags- og byggingarfulltrúa að vinna málið áfram og senda lóðarhöfum bréf til áminningar um að lausafjármunir án stöðuleyfa verði fjarlægðir á kostnað eiganda sbr. heimildir í gr. 2.6.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012 ef ekki verði brugðist við. Nefndin samþykkti einnig, fyrir sitt leyti, að breyta reglum um stöðuleyfi lausafjármuna í Fjarðabyggð í samræmi við framlagða tillögu. Bæjarráð samþykkir breytingar á reglum um stöðuleyfi lausafjármuna, fyrir sitt leyti, og vísar þeim til samþykktar bæjarstjórnar. Bæjarstjóra falið að fara yfir útfærslu breytinga gagnvart leyfishöfum.
-
3. Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2017/2018.
Mál 1709072 Allur ferill málsins
Bréf atvinnu- og þróunarstjóra er varðar sérstök skilyrði vegna byggðakvóta fiskveiðiárið 2017/2018. Endurskoða þarf breytingar sem bæjarráð lagði til við bæjarstjórn vegna breyttra forsendna frá ráðuneyti. Í ljósi nýrra upplýsinga frá ráðuneyti leggur bæjarráð til við bæjarstjórn að reglurnar verði staðfestar, eins og lagt var upp með í byrjun. Jafnframt er atvinnu- og þróunarstjóra falið að setja sig í samband við Byggðastofnun vegna sérstakra aðstæðna sem uppi eru í Mjóafirði. Leggja málið að nýju fyrir bæjarráð þegar niðurstaða liggur fyrir.
-
4. Uppgjör launagreiðenda A deildar Brúar vegna breytinga á lögum
Mál 1703227 Allur ferill málsins
Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins. Lögð fram tillaga fjármálastjóra að fjármögnun á uppgjöri skuldbindinga Fjarðabyggðar gagnvart A-deild Brúar, lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga. Bæjarráð samþykkir tillögu fjármálastjóra og felur honum að óska eftir lántöku frá LSR vegna lífeyrisaukasjóðs og lán vegna varúðarsjóðs verði tekið hjá Brú. Jafnframt að leggja endanlega tillögu vegna lántöku fyrir bæjarráð, þegar niðurstaða liggur fyrir.
-
5. Bleiksárhlíð 56 - sala (gamla Hulduhlíð)
Mál 1702215 Allur ferill málsins
Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins. Farið yfir söluferli Bleiksárhlíðar 56 á Eskifirði og samráð um ferlið við Fjármála- og efnahagsráðuneytið. Fjármálastjóra falið að koma nýju sölumati fasteignasala á framfæri við ráðuneytið og auglýsa fasteignina að nýju.
-
6. Eistnaflug 2018
Mál 1710039 Allur ferill málsins
Lögð fram drög að samningi vegna Eistnaflugs 2018. Bæjarráð samþykkir samning fyrir sitt leyti og felur bæjarstjóra undirritun hans. Jafnframt er samningi visað til kynningar og umræðu í menningar- og safnanefnd.
-
7. Afnot af íþróttahúsi Neskaupstaðar 26-28.janúar
Mál 1801108 Allur ferill málsins
Framlagt bréf Hljóðkerfaleigunnar ehf. þar sem óskað er eftir afnotum af íþróttahúsinu í Neskaupstað 26. til 28. janúar nk. Bæjarráð samþykkir afnot með sama hætti og á síðasta ári. Íþrótta- og tómstundafulltrúa falið að vera í samskiptum við umsjónarmenn blótsins vegna afnota af húsinu.
-
8. Ábendingar um hvernig hægt sé að verjast spillingu í opinberum innkaupum
Mál 1801120 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað sambandsins er varðar skýrslu um hvernig hægt er að verjast spillingu í opinberum innkaupum.
-
9. 740 Landanaust 3 - Umsókn um lóð
Mál 1801099 Allur ferill málsins
Lögð fram lóðarumsókn Fjarðanets hf, dagsett 12. janúar 2018, þar sem sótt er um lóðina Landanaust 3 á Norðfirði undir atvinnuhúsnæði. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni að Landanausti 3 og vísar umsókninni til Hafnarstjórnar til umfjöllunar og bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.
Erindið var tekið fyrir í hafnarstjórn 16.janúar og vísað til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu. Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðar.
-
10. Mikilvægi ungmennaráðs
Mál 1801064 Allur ferill málsins
Vísað til bæjarráðs frá fundi bæjarstjórnar og ungmennaráðs 11.janúar 2018. Í bréfinu er m.a. fjallað um fjármagn til ungmennaráðs. Bæjarráð þakkar erindið og felur bæjarritara og forseta bæjarstjórnar að skoða málið nánar.
-
11. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 195
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 195 frá 15.janúar 2018, lögð fram til kynningar.
- 11.1 740 Landanaust 3 - Umsókn um lóð1801099
- 11.2 740 Þiljuvellir 27 - byggingarleyfi1801072
- 11.3 740 Kirkjuból - kæra varðaðandi ákvörðun bæjarstjórnar Fjarðabyggðar vegna stækkunar reits O5 á Kirkjubólseyrum1702227
- 11.4 Viðbygging við leikskólann Lyngholt1611029
- 11.5 Ferilsprófun á jarðhitasvæðinu í Eskifirði1801102
- 11.6 Beiðni um umsögn vegna tillögu að matsáætlun - 520.000 m3 efnistaka við Eyri í Reyðarfirði1801058
- 11.7 Efnistaka í landi Sléttu Reyðarfirði - beiðni um umsögn1710125
- 11.8 Erindi um að Fjarðabyggð verði tilraunasveitarfélag í stórátaki í loftslagsmálum með endurheimt votlendis1712103
- 11.9 Aukin framleiðsla á laxi í Reyðarfirði um 10.000 tonn - beiðni um umsögn á frummatsskýrslu1801087
- 11.10 Tjaldsvæði í Fjarðabyggð 20181801096
-
12. Fræðslunefnd - 50
Fundargerð fræðslunefndar, nr. 50 frá 17.janúar 2018, lögð fram til kynningar.
- 12.1 Þjónusta talmeinafræðings í heimabyggð1712075
- 12.2 Fræðslumál starfsmanna grunn- og leikskóla1708129
- 12.3 Tillögur Velferðarvaktarinnar gegn brotthvarfi nemenda úr framhaldsskólum1712055
- 12.4 Móttaka flóttamanna á árinu 20181710151
- 12.5 Ósk um breytingu á skóladagatali leikskólans Lyngholts - flutningur á skipulagsdegi1801105
- 12.6 Mötuneyti grunnskólanna1801066
- 12.7 Forvarnir og fræðsla1801065
-
13. Hafnarstjórn - 189
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 189 frá 16.janúar 2018, lögð fram til kynningar.
- 13.1 Fundargerðir CI á árinu 20171701009
- 13.2 Aðalfundur Cruise Europe 24. til 26. apríl 20181712024
- 13.3 Þáttökuboð á sölusýningu skemmtiferðaskipa í Fort Lauderdale 6-8 mars 20181712025
- 13.4 Vinnustofa Cruise Iceland 20171707116
- 13.5 Erindi vegna öryggismála á höfnum1712033
- 13.6 Erindi frá Hafnasambandi Íslands vegna samráðshóps með Fiskistofu1712035
- 13.7 Fundargerðir Hafnasamband Íslands 20171701008
- 13.8 Gjaldskrá Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 20181706041
- 13.9 Grjótvarnir í Fjarðabyggð1503195
- 13.10 Búnaðarmál hafnarinnar Fáskrúðsfirði1712030
- 13.11 Breyting á hlutafé Fiskmarkaðar Austurlands1801038
- 13.12 Mjóeyrarhöfn 2.áfangi - stækkun1210091
- 13.13 740 Landanaust 3 - Umsókn um lóð1801099
- 13.14 Aukin framleiðsla á laxi í Reyðarfirði um 10.000 tonn - beiðni um umsögn á frummatsskýrslu1801087
-
14. Félagsmálanefnd - 104
Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 104 frá 16.janúar 2018, lögð fram til kynningar.
- 14.1 Móttaka flóttamanna á árinu 20181710151
- 14.2 Sérstakt búsetuúrræði1801106
- 14.3 Styrkur til félagsþjónustunnar1712015
- 14.4 Rekstrarform hjúkrunarheimila í Fjarðabyggð1712040
- 14.5 26.mál til umsagnar frumvarp til laga um þjónustu við fatlað fólk með miklar stuðningsþarfir, 26. mál.1712070
- 14.6 27.mál til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga1712073
-
15. Íþrótta- og tómstundanefnd - 44
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar, nr. 44 frá 18.janúar 2018, lögð fram til kynningar.
- 15.1 Aðsókn í íþróttamistöðvar Fjarðabyggð 2017
- 15.2 Zveskjan
- 15.3 Norðfjarðarvöllur
- 15.4 Umsókn um styrk frá karate á Austurlandi vegnu leigu á húsnæði
- 15.5 Umsókn um styrk vegna reksturs og leigu