Forvarnir og fræðsla
Mál 1801065 Fyrst á dagskrá 17. janúar 2018, síðast 22. janúar 2018. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Fræðslunefnd.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2018
Fræðslunefnd, fundur 50 liður 7
Málinu er vísað til fræðslunefndar eftir umræðu á sameiginlegum fundi ungmennaráðs og bæjarstjórnar. Fram kom í máli fulltrúa ungmennaráðs að mikilvægt væri að auka forvarnir í Fjarðabyggð, bæði fyrir fullorðið fólk sem og ungmenni á grunn- og framhaldsskólastigi. Tillagan er í fjórum liðum, fullorðinsfræðsla, fræðsla um kynhneigð, kynlífsfræðsla í grunnskólum og fræðsla um hættur varðandi rafrettur, áfengi og tóbak. Fræðslunefnd þakkar framkomnar tillögur sem falla vel að fjölskyldustefnu Fjarðabyggðar og starfsáætlunum fjölskyldusviðs fyrir árið 2018. Fræðslunefnd felur starfsmönnum fjölskyldusvið að fylgja málinu eftir.
-
Bæjarráð, fundur 549 liður 12.7
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 50“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.