Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2018

Tillögur Velferðarvaktarinnar gegn brotthvarfi nemenda úr framhaldsskólum

Mál 1712055 Fyrst á dagskrá 17. janúar 2018, síðast 22. janúar 2018. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Fræðslunefnd.

Í heiti málsins: Skólar og fræðslaVelferð

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2018

    Fræðslunefnd, fundur 50 liður 3

    Fyrir liggja tillögur Velferðarvaktarinnar gegn brotthvarfi nemenda úr framhaldsskólum. Hluti af tillögunum snúa að forvörnum í grunnskóla svo minnka megi líkur á brottfalli nemenda þegar í framhaldsskólann kemur. Fræðslunefnd tekur undir tillögur Velferðarvaktarinnar sem falla vel að fjölskyldustefnu Fjarðabyggðar þar sem m.a. er lögð áhersla á forvarnir og þétt samstarf milli grunnskóla og framhaldsskóla við flutning nemenda milli skólastiga. Fræðslunefnd felur fræðslustjóra að fara yfir tillögurnar með skólastjórum grunnskólanna í Fjarðabyggð.

  2. Bæjarráð, fundur 549 liður 12.3

    Fundargerðin „Fræðslunefnd - 50“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is