Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2018

Efnistaka í landi Sléttu Reyðarfirði - beiðni um umsögn

Mál 1710125 Fyrst á dagskrá 26. október 2017, síðast 22. janúar 2018. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Í heiti málsins: Reyðarfjörður

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2017

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 189 liður 5

    Lögð fram beiðni Skipulagsstofnunar, dagsett 22. nóvember 2016, um umsögn um hvort og á hvaða forsendum fyrirhuguð efnistaka í Sléttuá í Reyðarfirði skuli háð mati á umhverfisáhrifum að teknu tilliti til 2. viðauka laga nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum og reglugerðar nr. 660/2015 um mat á umhverfisáhrifum. Lögð fram greinagerð Eflu og Steinholts, dagsett 2. október 2017, um um efnistöku í landi Sléttu, Reyðarfirði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd telur að fyrirhuguð efnistaka sé ekki háð mati á umhverfisáhrifum og felur Skipulags- og byggingafulltrúa að svara erindi í samstarfi við Umhverfisstjóra.

  2. Bæjarstjórn, fundur 231 liður 4.5

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 189“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. 2018

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 195 liður 7

    Lagt fram til kynningar bréf Skipulagsstofnunar, dagsett 20. desember 2017, þar sem fram kemur að stofnunin telji að fyrirhugð 45.000 m3 efnistaka í Sléttuá sé ekki háð mati á umhverfisáhrifum.

  4. Bæjarráð, fundur 549 liður 11.7

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 195“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is