NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 189
26. október 2017, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Marinó Stefánsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Svanhvít Yngvadóttir, aðalmaður
- Einar Már Sigurðarson, aðalmaður
- Ragnar Sigurðsson, varaformaður
Starfsmenn
- Marinó Stefánsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 540 liður 13
Framlögð til kynningar fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 26. október sl.
Bæjarstjórn, fundur 231 liður 4
Fundargerðir eigna- skipulags- og umhverfisnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 26. október s.l.staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Innkaupareglur Fjarðabyggðar - endurskoðun 2017
Mál 1705245 Allur ferill málsins
Snorri Styrkárson Fjármálastjóri sat þennan fundarlið og kynnti drög að innkaupareglum Fjarðabyggðar.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd þakkar Snorra fyrir góða yfirferð á hinum nýju innkaupareglum.
-
2. Tjaldsvæði Fjarðabyggð 2017
Mál 1612066 Allur ferill málsins
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur umhverfisstjóra í samráði við sviðstjóra að útfæra útboð á rekstri tjaldsvæða í Fjarðabyggð byggt framlögðum tillögum um rekstrarfyrirkomulag.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd fór yfir drög af tillögum og ræddi útfærslur. Umhverfisstjóra falið að útfæra þær frekar og leggja fyrir nefndina að nýju.
-
3. Framkvæmdasjóður ferðamannastaða, umsóknir, framvinda og framkvæmd 2017
Mál 1709155 Allur ferill málsins
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti framlagðar umsóknir umhverfisstjóra í tölvupósti þann 25.október sl. og fól umhverfisstjóra að senda þær inn til umsóknar hjá Framkvæmdarsjóði ferðamannastaða fyrir auglýstan tímafrest.
-
4. Ljósá - ofanflóðaframkvæmdir
Mál 1602108 Allur ferill málsins
Fundargerðir lagðar fram til kynningar.
-
5. Efnistaka í landi Sléttu Reyðarfirði - beiðni um umsögn
Mál 1710125 Allur ferill málsins
Lögð fram beiðni Skipulagsstofnunar, dagsett 22. nóvember 2016, um umsögn um hvort og á hvaða forsendum fyrirhuguð efnistaka í Sléttuá í Reyðarfirði skuli háð mati á umhverfisáhrifum að teknu tilliti til 2. viðauka laga nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum og reglugerðar nr. 660/2015 um mat á umhverfisáhrifum. Lögð fram greinagerð Eflu og Steinholts, dagsett 2. október 2017, um um efnistöku í landi Sléttu, Reyðarfirði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd telur að fyrirhuguð efnistaka sé ekki háð mati á umhverfisáhrifum og felur Skipulags- og byggingafulltrúa að svara erindi í samstarfi við Umhverfisstjóra.
-
6. 755 Saxa - framkvæmdaleyfi, áningastaður og stígar
Mál 1710131 Allur ferill málsins
Lögð fram framkvæmdaleyfisumsókn Fjarðabyggðar, dagsett 18. júlí 2017, þar sem óskað er eftir leyfi til að hefja framkvæmdir við áningastað og stígagerð við sjávarhverinn Söxu í samræmi við deiliskipulag svæðisins.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að framkvæmdir verði hafnar við Söxu og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfið.
-
7. 740 Nesagata 6 - byggingarleyfi
Mál 1710107 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Björgunarsveitarinnar Gerpis, dagsett 17. október 2017, þar sem sótt er um leyfi til að breyta notkun hússins að Nesgötu 6 á Norðfirði úr vélaverkstæði í björgunarstöð.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að breyta skráningu hússins þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.
-
8. 730 Mjóeyrarhöfn - umsókn um stöðuleyfi, starfsmannaaðstaða Eimskips
Mál 1710105 Allur ferill málsins
Lögð fram stöðuleyfisumsókn Ara Benediktssonar/Mannvits hf fh. Eimskips, dagsett 16. október 2017, þar sem sótt er um endurnýjun stöðuleyfis fyrir starfsmannaaðstöðu Eimskips í gámaeiningum innan hafnarsvæðis Mjóeyrarhafnar.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir endur útgáfu stöðuleyfis til tólf mánaða, en óskar eftir að hafnarstjórn gangi í þá vinnu að skipuleggja í samráði við hagsmunaraðila á svæðinu framtíðarlausn að aðstöðu fyrir starfsmenn á hafnarsvæðinu við Mjóeyrarhöfn.
-
9. 730 Austurvegur 20 - umsókn um stöðuleyfi - gáma
Mál 1710097 Allur ferill málsins
Lögð fram stöðuleyfisumsókn Þorgeirs Sæberg fh Ísaga ehf, dagsett 16. október 2017, þar sem sótt er um stöðuleyfis fyrir tvo gáma fyrir gasgeymslu og sölu innan lóðar Austurvegar 20a á Reyðarfirði.
Samþykki lóðarhafa og eldvarnareftirlits liggur fyrir.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir útgáfu stöðuleyfis til tólf mánaða og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.
-
10. Allt að 21.000 tonna framleiðsla á laxi í Berufirði og Fáskrúðsfirði - beiðni um umsögn
Mál 1709077 Allur ferill málsins
Erindi frá Skipulagsstofnun dags. 28. september þar sem óskað er eftir umsögn um frummatsskýrslu fyrir 21.000 tonna eldi í Berufirði og Fáskrúðsfirði. Fyrir fundinum lá vinnuskjal frá Hafnarstjórn sem vísað var til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og bæjarráðs til umfjöllunar.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd fór yfir skjalið og vísar því til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.
-
11. Eftirfylgni samnings um meðhöndlun úrgangs 2017
Mál 1703188 Allur ferill málsins
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd fundaði með starfsmönnum ÍGF og fór yfir samning við þá og starfsemi þeirra í sveitarfélaginu.