Mötuneyti grunnskólanna
Mál 1801066 Fyrst á dagskrá 17. janúar 2018, síðast 22. janúar 2018. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Fræðslunefnd.
Í heiti málsins: Skólar og fræðsla
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2018
Fræðslunefnd, fundur 50 liður 6
Málinu er vísað til fræðslunefndar eftir umræðu á sameiginlegum fundi ungmennaráðs og bæjarstjórnar. Fram kom í máli fulltrúa ungmennaráðs að bæta megi gæði skólamáltíða. Fræðslunefnd þakkar ábendingar og felur fræðslustjóra í samráði við skólastjórnendur að kanna málið og leita úrbóta. Fræðslunefnd vill jafnframt taka fram að frá og með haustinu 2017 var ákveðið að taka upp sameiginlegan matseðil fyrir alla leik- og grunnskóla í Fjarðabyggð. Matseðilinn rúllar á 7 vikna fresti og þeir sem sjá um matinn hafa úr nokkrum uppskriftum að velja hvern dag. Allir matseðlar eru teknir út af næringarfræðingum og við samsetningu matseðlanna er farið eftir ráðleggingum frá landlæknisembættinu sem styðjast við samnorrænar næringarráðleggingar.
-
Bæjarráð, fundur 549 liður 12.6
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 50“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.