Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 550

29. janúar 2018, kl. 09:00 til 09:45, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jens Garðar Helgason, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Dagskrá

  1. 1. Uppgjör launagreiðenda A deildar Brúar vegna breytinga á lögum

    Mál 1703227 Allur ferill málsins

    Áður á dagskrá fundar bæjarráðs 8. janúar 2018.

    Lagt fram minnisblað fjármálastjóra og samkomulag um uppgjör á skuldbindingum Fjarðabyggðar gagnvart A deild Brúar Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga. Eindagi greiðslu skuldbindinga samkvæmt uppgjörinu og samkomulaginu er 15. febrúar 2018.

    Bæjarráð samþykkir samkomulagið og felur bæjarstjóra undirritun þess.

  2. 2. Lántaka hjá Brú lífeyrissjóður vegna Varúðarsjóðs

    Mál 1801146 Allur ferill málsins

    Lagður fram lánasamningur við Brú lífeyrissjóð starfsmanna sveitarfélaga með höfuðstólsfjárhæð kr 33.493.772. Lánið er ætlað til greiðslu uppgjörs vegna varúðarsjóðs Brúar lífeyrisjóðs starfsmanna sveitarfélaga.

    Bæjarráð samþykkir lánasamning við Brú lífeyrissjóð starfsmanna sveitarfélaga fyrir sitt leyti og vísar honum til staðfestingar bæjarstjórnar.

  3. 3. Skammtímalán hjá Lánasjóði sveitarfélaga vegna uppgjörs við Brú lífeyrissjóð

    Mál 1801156 Allur ferill málsins

    Framlögð tilkynning frá Lánasjóði sveitarfélaga um frestun á afgreiðslu lántöku úr lánaflokki LSS2055 og veitingu skammtímaláns í staðin til mánaðarmóta febrúar/mars 2018. Fyrir liggur samþykki um gjalddaga 2.mars í stað 28.febrúar enda áætlaður bæjarstjórnarfundur 1.mars nk.

    Bæjarráð samþykkir að tekið verði skammtímalán frá 14.febrúar til 28.febrúar 2018 að fjárhæð 317 milljónir kr. til að fjármagna tímabundið lífeyrisskuldbindingu við Brú lífeyrissjóð. Staðfestingu á lántöku vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.