Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 553

19. febrúar 2018, kl. 08:30 til 11:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (4)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Dagskrá

  1. 1. Ljósleiðaravæðing í dreifbýli Fjarðabyggðar

    Mál 1708073 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf og minnisblað frá Póst og fjarskiptastofnun sem er svar stofnunar við bréfi Fjarðabyggðar frá 22. september 2017 um lagningu ljósleiðar á suðurfjörðum Fjarðabyggðar og álitaefni vegna athugasemda Mílu hf.

  2. 2. Nýjar persónuverndarreglur 2018

    Mál 1612047 Allur ferill málsins

    Umræða tekin um innleiðingu nýrra persónuverndarlag sem taka eiga gildi í maí 2018, verkefni sem liggja fyrir til undirbúnings og öryggismál.

    Bæjarritara falin áframhaldandi vinnsla málsins.

  3. 3. Greiðslur til áheyrnarfulltrúa foreldra í fræðslumálum

    Mál 1711183 Allur ferill málsins

    Bréf formanns Fjarðaforeldra er varðar greiðslur til áheyrnarfulltrúa foreldra á fundum fræðslunefndar tekið til umræðu. Erindi var áður á dagskrá fundar bæjarráðs 11. desember sl. Framlagt minnisblað um fjölda áheyrnarfulltrúa í nefndum Fjarðabyggðar.

    Bæjarráð vísar umfjöllun um greiðslur til áheyrnarfulltrúa til endurskoðunar reglna um kjör kjörinna fulltrúa fyrir næsta kjörtímabil.

  4. 4. Álit reikningsskila- og upplýsinganefndar v/uppgjörs við Brú Lífeyssjóð vegna laga nr. 127/2016

    Mál 1802088 Allur ferill málsins

    Framlagt álit reikningsskila- og upplýsinganefndar um færslu í bókhaldi á uppgjöri við Brú lífeyrissjóð.

    Bæjarráð furðar sig á áliti reikniskila- og upplýsinganefndar og felur fjármálastjóra að fara yfir framkvæmd álitsins með endurskoðanda.

  5. 5. Aðstöðuhús við Mjóeyrarhöfn

    Mál 1704021 Allur ferill málsins

    Hafnarstjórn samþykkti á fundi 9.maí 2017 að kaupa lausa kennslustofu og koma fyrir við Mjóeyrarhöfn. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd fjallaði um málið á fundi 25.september 2017, samþykkti umsóknina og fól skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir. Bæjarráð samþykkir kaup á húsinu og felur bæjarstjóra undirritun samnings um kaup á húsinu.

  6. 6. Húsnæðisstefna Fjarðabyggðar

    Mál 1611104 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað og drög húsnæðisstefnu Fjarðabyggðar sem trúnaðarmál til síðari umræðu í bæjarstjórn. Tillagan hefur verið kynnt Íbúðalánasjóði. Tillagan er með minniháttar breytingum frá fyrri umræðu sem skýrðar eru í minnisblað fjármálastjóra um breytingarnar.

    Vísað til áframhaldandi umræðu í bæjarráði.

  7. 7. B gatnagerðargjöld - þinglýstar kvaðir TRÚNAÐARMÁL

    Mál 1802102 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað fjármálastjóra sem trúnaðarmál, um álagningu og innheimtu gatnagerðargjalda.

    Bæjarráð samþykkir tillögur fjármálastjóra sem koma fram í minnisblaði og felur fjármálastjóra afgreiðslu málsins.

  8. 8. Rekstrarform hjúkrunarheimila í Fjarðabyggð

    Mál 1712040 Allur ferill málsins

    Umræða tekin um samantekt KPMG um lagaumhverfi og rekstrarform hjúkrunarheimila. Áður tekið fyrir á fundi bæjarráðs 11. desember sl. þar sem samantektinni var vísað til félagsmálanefndar til kynningar og áframhaldandi umræðu í bæjarráði. Vísað til áframhaldandi umræðu í bæjarráði.

  9. 9. Markaðs og kynningarmál 2018

    Mál 1802107 Allur ferill málsins

    Rætt um áherslur í markaðs- og kynningarmálum sveitarfélagsins.

    Upplýsingafulltrúa falið að skoða málið frekar.

  10. 10. Nýtingaráætlun fyrir haf- og strandsvæði í Fjarðabyggð

    Mál 1712006 Allur ferill málsins

    Breyting á skipan á stýrihóp vegna nýtingaráætlunar fyrir haf og strandsvæði. Ragnar Sigurðsson víkur sæti í hópnum sem fulltrúi eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og í hans stað kemur Dýrunn Pála Skaftadóttir varamaður hans í nefndinni.