Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2018

Ósk um breytingu á skóladagatali leikskólans Lyngholts - flutningur á skipulagsdegi

Mál 1801105 Fyrst á dagskrá 17. janúar 2018, síðast 22. janúar 2018. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Fræðslunefnd.

Í heiti málsins: SkipulagSkólar og fræðsla

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2018

    Fræðslunefnd, fundur 50 liður 5

    Fyrir liggur minnisblað frá fræðslustjóra þar sem fram kemur að ósk hafi borist frá skólastjórnendum leikskólans Lyngholts á Reyðarfirði um breytingu á skóladagatali skólans. Um er að ræða flutning á skipulagsdegi. Búið er að bera breytinguna undir foreldraráð skólans sem hefur samþykkt hana fyrir sitt leyti.

    Um er að ræða skipulagsdag sem átti að vera 6. apríl 2018 og óskað er eftir að hann verði 20. apríl 2018. Ástæðan er verkefnastaða starfsmanna á þessum tíma. Fræðslunefnd samþykkir beiðnina og biður leikskólastjóra að auglýsa breytinguna sem fyrst þannig að foreldrar geti gert viðeigandi ráðstafanir.

  2. Bæjarráð, fundur 549 liður 12.5

    Fundargerðin „Fræðslunefnd - 50“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is