Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFélagsmálanefnd

Félagsmálanefnd, fundur 104

16. janúar 2018, kl. 16:15 til 17:15, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Helga Elísabet Guðlaugsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Hulda Sigrún Guðmundsdóttir, formaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
  • Borghildur Hlíf Stefánsdóttir, aðalmaður
  • Ásmundur Páll Hjaltason, aðalmaður
  • Heiðar Már Antonsson, varaformaður

Starfsmenn

  • Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 549 liður 14

    Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 104 frá 16.janúar 2018, lögð fram til kynningar.

Dagskrá

  1. 1. Móttaka flóttamanna á árinu 2018

    Mál 1710151 Allur ferill málsins

    Farið yfir málefni er snúa að móttöku kvótaflóttafólks í Fjarðabyggð. Farið yfir kostnaðarliði og innihald samnings sem gerður verður við velferðarráðuneytið. Félagsmálastjóra í samráði við fræðslustjóra falið að ljúka gerð samaningsins og hann lagður fyrir bæjarráð til samþykktar.

  2. 2. Sérstakt búsetuúrræði

    Mál 1801106 Allur ferill málsins

    Félagsmálastjóri sagði frá búsetuúrræði sem verið er að útbúa fyrir þjónustunotanda. Gert er ráð fyrir auknum kostnaði.

  3. 3. Styrkur til félagsþjónustunnar

    Mál 1712015 Allur ferill málsins

    Félagsmálanefnd þakkar Þórhalli Þorvaldssyni kærlega fyrir höfðinglega gjöf.

  4. 4. Rekstrarform hjúkrunarheimila í Fjarðabyggð

    Mál 1712040 Allur ferill málsins

  5. 5. 26.mál til umsagnar frumvarp til laga um þjónustu við fatlað fólk með miklar stuðningsþarfir, 26. mál.

    Mál 1712070 Allur ferill málsins

    Félagsmálanefnd styður áherslur Sambands íslenskra sveitarfélaga í umsögn sambandins um fyrirliggjandi frumvarp er varðar breytingu á lögum um þjónustu við fatlað fólk með miklar stuðningsþarfir.

  6. 6. 27.mál til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga

    Mál 1712073 Allur ferill málsins

    Félagsmálanefnd styður áherslur Sambands íslenskra sveitarfélaga í umsögn sambandins um fyrirliggjandi frumvarp er varðar félagsþjónustu sveitarfélaga.