Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFélagsmálanefnd

Félagsmálanefnd, fundur 105

6. febrúar 2018, kl. 16:15 til 17:15, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Helga Elísabet Guðlaugsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Hulda Sigrún Guðmundsdóttir, formaður
  • Borghildur Hlíf Stefánsdóttir, aðalmaður
  • Ásmundur Páll Hjaltason, aðalmaður
  • Heiðar Már Antonsson, varaformaður

Starfsmenn

  • Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir, embættismaður

Dagskrá

  1. 1. Gjaldskrá Fjölskyldusviðs 2018 vegna stuðningsfjölskyldna við fötluð börn

    Mál 1709193 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað ráðgjafarþroskaþjálfa um gjaldskrá vegna þjónustu stuðningsfjölskyldna fatlaðra barna.Greiðsla tekur mið af upphæðum bóta almannatrygginga 1. janúar 2018. Félagsmálanefnd samþykkir gjaldskrána og vísar til staðfestingar í bæjarráði.

  2. 2. Gjaldskrá félagslegrar heimþjónustu 2018

    Mál 1709210 Allur ferill málsins

    Framlagt var fylgiskjal með gjaldskrá félagslegar heimaþjónustu árið 2018 til samþykktar í félagsmálanefnd.Í fylgiskjali koma fram tekjumörk vegna afsláttar á gjaldi vegna félagslegar heimaþjónustu. Viðmiðunarupphæðir eru samkvæmt tekjumörkum TR í janúar 2018. Félagsmálanefnd samþykkir fylgiskjal gjaldskrár félagslegrar heimaþjónustu 2018.

  3. 3. Upplýsingagjöf vegna húsnæðisvanda einstaklinga í Fjarðbyggð

    Mál 1801022 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Umboðsmanns Alþingis þar sem óskað er eftir upplýsingum um almenn úrræði sbr. 45. gr. laga 40/1991. Félagsmálastjóri hefur svarað erindinu.

  4. 4. Öldungaráð

    Mál 1610001 Allur ferill málsins

  5. 5. Almennt erindi

    Mál 1802016 Allur ferill málsins