Félagsmálanefnd, fundur 106
6. mars 2018, kl. 16:00 til 17:00, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Helga Elísabet Guðlaugsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Hulda Sigrún Guðmundsdóttir, formaður
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
- Borghildur Hlíf Stefánsdóttir, aðalmaður
- Ásmundur Páll Hjaltason, aðalmaður
- Heiðar Már Antonsson, varaformaður
Starfsmenn
- Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 556 liður 22
Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 106 frá 6.mars 2018, lögð fram til kynningar.
Dagskrá
-
1. Félagsmálanefnd 2018
Mál 1801027 Allur ferill málsins
Félagsmálanefnd tók ákvörðun um að funda eftirtalda daga:
107. fundur
10. apríl - Fundur hefst á Uppsölum
108. fundur
8. maí
-
2. Reglur um fjárhagsaðstoð 2018
Mál 1803010 Allur ferill málsins
Framlagt er minnisblað félagsmálastjóra um endurskoðun reglna Fjarðabyggðar um fjárhagsaðstoð ásamt uppfærðum reglum Fjarðabyggðar um fjárhagsaðstoð til samþykktar félagsmálanefndar. Meðferðarteymi fjölskyldusviðs hefur fjallað um mál þar sem þörf var á fjárhagsaðstoð til fjölskyldna en reglur Fjarðabyggðar um fjárhagsaðstoð náðu ekki yfir aðstæður sem þar höfðu skapast. Til að uppfylla markmið fjölskyldustefnu Fjarðabyggðar leggur félagsmálastjóri til að nýrri grein verði bætt við IV. kafla reglna Fjarðabyggðar um fjárhagsaðstoð. Félagsmálanefnd samþykkir breytingar á reglum Fjarðabyggðar um fjárhagsaðstoð og vísar til bæjarráðs.
-
3. Jafnréttisþing 7.-8. mars 2018 og málstofa 8. mars
Mál 1803021 Allur ferill málsins
Jafnréttisþing verður haldið 7.-8. mars.
Dagskráin á erindi ekki aðeins við þá sem fara með jafnréttismál, heldur líka framkvæmdastjóra og alla fulltrúa í sveitarstjórn og þá sem fara með mannauðs- og mannréttindamál í sveitarfélaginu, svo og málefni innflytjenda.
Samkvæmt upplýsingum velferðarráðuneytisins verður hægt að fylgjast með málþinginu á vefnum í gegnum tengil, bæði á meðan á því stendur og eftir á. Kynnt í félagsmálanefnd.
-
4. Styrktarsjóður EBÍ 2018
Mál 1802154 Allur ferill málsins
Auglýst hefur verið eftir umsóknum í Styrktarsjóð EBÍ. Tilgangur sjóðsins er að styrkja með fjárframlögum sérstakar athuganir eða rannsóknir á ýmsum þróunarþáttum í atvinnulífi, samgöngum, fræðslu og menningarmálum í aðildarsveitarfélögum. Fræðslunefnd beinir því til starfsmanna fjölskyldusviðs að leita eftir áhugaverðum verkefnum sem hægt væri að sækja um. Nefndin vísar einnig málinu til kynningar í félagsmálanefnd, eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, hafnarstjórn og menningar- og safnanefndar. Kynnt í félagsmálanefnd.
-
5. Beiðni um undanþágu frá reglum Fjarðabyggðar um útleigu íbúða vegna hunda- og kattahalds.
Mál 1802025 Allur ferill málsins
Erindi lagt fram til kynningar. Eigna,- skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að sömu reglur gildi í íbúðum Fjarðabyggðar og í fjölbýlishúsum almennt. Samþykki annarra íbúa þurfi að liggja fyrir. Samþykkt í bæjarstjórn 1.3.2018. Félagsmálanefnd fagnar niðurstöðunni.
-
6. Í skugga valdsins
Mál 1712003 Allur ferill málsins
Á fundi stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga sem haldinn var 26. janúar 2018 var lögð fram viljayfirlýsing, dags. 11. janúar 2018, um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustöðum. Vísað til vinnslu í starfshópi bæjarráðs og til kynningar í fastanefndum bæjarins. Kynnt í félagsmálnefnd sem tekur undir viljayfirlýsingu stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
-
7. Opnun útibús Aflsins á Reyðarfirði
Mál 1802099 Allur ferill málsins
Aflið er samtök sem stofnuð voru á Akureyri 2002 í framhaldi af tilraunastarfsemi Stígamóta þar sem í ljós kom mikil þörf fyrir samtök af þessu tagi. Starfsemin byggir á forsendum þolenda kynferðislegs ofbeldis og/eða heimilisofbeldis. Aflið er fyrir alla sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi og/eða heimilisofbeldi og aðstandendur þeirra s.s. maka, foreldra, systkini og vini sem óska eftir ráðgjöf.
Framlagt er bréf frá verkefnastjóra Aflsins þar sem óskað er eftir stuðningi sveitarfélagsins við að koma á fót úrræði fyrir þolendur ofbeldis og aðstandendur þeirra í Fjarðabyggð.
Félagsmálanefnd tekur jákvætt undir erindi Aflsins og felur félagsmálastjóra að koma á fundi með verkefnastjóra Aflsins.
-
8. Húsnæðisstefna Fjarðabyggðar
Mál 1611104 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað og drög húsnæðisstefnu Fjarðabyggðar sem trúnaðarmál, fyrir síðari umræðu í bæjarstjórn. Bæjarráð samþykkir að vísa húsnæðisstefnu til umfjöllunar í nefndum sveitarfélagsins og því næst til lokaafgreiðslu bæjarstjórnar við síðari umræðu 22. mars 2018.
Félagsmálanefnd gerir ekki athugasemd við drögin.